Það er afskaplega fallegt veður þótt eilítið svalt sé. Börnin leika sér áhyggjulaus úti með vatnsbyssur, sem því miður er ástæða þess að ég get ekki lesið úti, eins leiðinlegt og það er að segja það. Þau vekja nefnilega upp tvær ólíkar kenndir: Annarsvegar góðar minningar úr manns eigin æsku, hinsvegar þá tilfinningu að sá tími er liðinn og að nú má maður ekki vera barn lengur. Ég héldi ekki athyglinni, raunar er hugurinn þegar farinn á flakk eftir aðeins fimm mínútna veru úti á svölum. En mikið öfundar maður börnin á dögum sem þessum. Nú er líka þeirra árstími kominn. Það var svo frábært að vera barn.
Lag dagsins er Hoppípolla með SigurRós. Textann má finna hér.
ég skal koma mér þér í vatnsslag…..alltaf til. Ég er eilífðarbarn
Líst vel á það. Við söfnum liði og leggjum sumarið undir okkur!