Hilmar sem ég vinn hjá hringdi í mig í morgun og spurði hvort að ég kæmist örugglega ekki í vinnuna. Ég var ekki búin að líta út um gluggan, rétt sá glitta í hvíta jörð og hugsaði með mér að þetta gæti ekki verið mikið mál, ég væri nú á nöglum. Þegar ég (eða eiginlega Hlynur) var svo að koma bílnum er stæðinu eftir að hafa mokað hann út þá var ég ekki lengur svona brött á því og var næstum búin að hringja í Hilmar og biðja hann um að sækja mig. En þetta tókst og ég komst í vinnuna á réttum tíma. Köld á tánum og með snjó upp á mið læri. Hringdi svo í ástkæra systur mína og þá sagði hún að það væri lítill snjór í Keflavíkinni. Snjórinn hefur sem sagt bara verið mér til heiðurs. Gaman að vera mikilvægur 🙂
Fór í ágætis vísindaferð á föstudaginn á Byggðasafnið í Hafnarfirði, kíkti svo á Fjörukránna og endaði á Pravda. ígætisskemmtun það. Dyraverði á Dillon tókst reyndar að ræna mig allri gleði þegar hann var með skæting við mig. Langar ekki að fara þangað í bráð. Þoli ekki fólk sem nýtir sér vald með þessum hætti!!
Ég ætla ekki að vera bitur þannig að ég ætla að halda áfram að læra..