Kúbuferðin var í einu orði æðisleg…. Það eina sem ég get mögulega kvartað yfir er ekki mjög góður matur og langt ferðalag. Annað var mjög gott.
Ég er svo búin að gera ekkert síðan ég kom heim, sem er ágætt nema að þegar maður gerir ekkert þá verður maður svo latur, allavega ég… En þessi pása hefur það samt í för með sér að ég er tilbúin að byrja aftur í skólanum, ekki eins og á seinustu önn þegar ég fór beint úr vinnunni í skólann og svo stoppaði hvorki vinnan né skólinn. Ég var bara ekki tilbúin í aðra svoleiðis önn, nú ætti ég að sjálfsögðu að getað lært eins og brjálæðingur þessa önnina.
Nýjustu fréttir eru þær að ég er búin að klippa af mér allt hárið…. Kannski ekki alveg allt en mikin hluta af því allavega. Það er skrýtið en það var gott að fara í klippingu. Ég geri það of sjaldan…
Fór í Orkuveituna í gær til að fá upplýsingar í sambandi við rafmagnið hérna og verð að segja að lélegri þjónustu hef ég ekki fengið í langan tíma, endemis hroki!!!
Það er svolítið skrýtið að koma heim í snjó og kulda þegar það var svona gott veður á Kúbu, en veðrið var þannig að maður þurfti aldrei að fara í buxur eða peysu, mjög gott. Það var svolítið skrýtið að sitja á gamlárskvöld á veitingastað úti og vera ekki dúðaður. En ég væri alveg til í að fara aftur til Kúbu og skoða meira. Stefni á það einn daginn.
Ætla að reyna að ganga eitthvað frá hérna..