Seinasta laugardag gerðist alveg stórmerkilegur atburður í mínu lífi.
Þá hringdi hann bróðir minn í mig til að láta mig vita að hann væri að fara að gifta sig nákvæmlega viku seinna.
Ég var orðlaus í svona 3 daga en svo fór undibúningur hjá mér á fullt. Þó að ég sé ekki að fara að gifta mig er margt sem þarf að gera, eins og að kaupa gjöf, fara í klippingu, heimsækja Helgu Jónu og flr. í þeim dúr. Nú er allt saman klappað og klárt nema fötin, þau virðast vera í felum. Það er ekki sterkur leikur að reyna að finna sér spariföt núna þegar útsölur eru í fullum gangi. Allt sem ég hef fundið til þessa er ekki nógu sparilegt eða ekki til í mínu númeri. En það hlýtur að reddast…
Þó að það hefði komið mér minna á óvart ef hún Anna Rán hefði ákveðið að gifta sig er ég orðin mjög spennt og hlakka til að mæta 🙂