Fjölgun vina í borginni

Hildur vinkona Eyglóar er flutt með unnusta sínum til Reykjavíkur, hún útskrifaðist líka á þriðjudag þannig að ég óska henni til hamingju með það ef hún les þetta.

Eva og Heiða (margnefndar hér) eru að flytja suður í haust. Ef þið hafið vinnu fyrir duglegar stelpur úr sveitinni (einni kynslóð frá burstabæ) í haust þá megið þið láta mig vita. Heiða gæti nú sótt um sem flugfreyja þar sem hún mun búa fyrst um sinn hjá áhrifamanni innan Flugleiða.

Allt er þetta gleðilegt, verð að segja að ég hlakka mest til að fá Evu enda skemmtilegast að taka myndir af henni. Ég á seríu af henni haldandi á blaðinu Myndbönd Mánaðarins fyrir andlitinu.