Hvurning ég hitti móður þína

Að því að ég held þá hef ég ekki ennþá bloggað um How I met your Mother. Í stuttu máli ákvað ég að gefa þessum þáttum séns eftir að hafa séð Jason Segel í Forgetting Sarah Marshall. Ég var ekkert að spyrja Eygló hvort hún vildi horfa en hún var bara á svæðinu og féll síðan alveg fyrir þáttunum. Þetta endaði með því að við horfðum á allar þrjár seríurnar á mettíma. Fyrir utan að hafa vel heppnaða karaktera og almennt góð handrit þá er verulega flott hvernig frásagnartæknin er notuð til að gera þetta skemmtilegra.

Við mælum sumsé alveg með þessu.

2 thoughts on “Hvurning ég hitti móður þína”

Lokað er á athugasemdir.