Enginn að tala um Keynes?

Ég slysaðist til að lesa Staksteina Morgunblaðsins og sá því haldið fram þar að enginn talaði um Keynes á Íslandi. Sá sem skrifaði þetta þjáist væntanlega af þeim misskilningi að umræðan í landinu fari fram á síðum Morgunblaðsins. Ef hann hefði hins vegar eyrum og augun opin myndi hann taka eftir mörgum vísunum í Keynes, bæði þar sem hann er nefndur á nafn og eins þar sem vísað er í kenningar hans.