Að lesa bréf fyrir Þjóðhátíð

Það var verið að tala við náungann sem las bréfið frá Árna Johnsen á Þjóðhátíð og hann sagði eitthvað á þá leið að öll bréf sem bærust væru lesin og það væri ekki vaninn að ritskoða þau. Ég er mikið að pæla í að skrifa bréf sem verður þá væntanlega lesið óritskoðað fyrir Þjóðhátíðargesti á næsta ári. Í því bréfi get ég kallað Árna siðlausan þjóf og sagt þeim Þjóðhátíðargestum sem klappa fyrir illfyglinu að hoppa upp í óæðri endann á sér. Helvítis pakk.

Vinna í vetur

Ég var löngu búinn að ákveða að ég myndi ekkert sækjast eftir því að fá vinnu með skóla í vetur á þeim stað sem ég er að vinna á. Í dag kom yfirmaður minn til mín og bauð mér vinnu á laugardögum í vetur, trúr sjálfum mér hrundi ég alveg og sagði já. Of erfitt að neita sér um fastan launaseðil mánaðarlega þó launin séu lág og vinnan lítil (4 og hálfur til 5 tímar á hverjum laugardegi). Ég ætla samt að biðja hann um meðmælabréf til að hafa ef ég sæki um eitthvað fleira. Mestu meðmælin hljóta samt að vera að hann bauð mér að vera áfram.

En nokkrir tímar á laugardagsmorgnum er ekkert mál, að vísu er ég núna alltaf þreyttur eftir þessa morgna en þá koma þeir í kjölfar erfiðrar vinnuviku, allt í lagi að erfiða í nokkra tíma í hverri viku. Og síðan get ég alltaf hætt.

Sem minnir mig á að ég á alltaf fast atvinnutilboð ef ég nenni að fara í gamla hlutastarfið sem ég var í, en ég efast um nenn mitt til þess.

En ef þið viljið bjóða mér vinnu þá getið þið endilega sent mér póst á oligneisti hjá http://kaninka.net.

Skilaskylda og Tekjublað Frjálsrar Verslunnar

Nú hef ég verið að pæla í einu. Allt sem er gefið út á Íslandi fer á tvö skilaskyldubókasöfn og þar getur almenningur skoðað það. Tekjublað Frjálsrar Verslunnar er bara til sölu í ákveðið marga daga vegna einhverra reglna (minnir mig). Hvernig hefur þetta áhrif á eintökin sem var á bókasöfnin? Eru einhverjar sérreglur um það? Dagblöðin birta svosem svipaða lista og en eru væntanlega aðgengileg á bókasöfnum löngu eftir að það má birta þessar upplýsingar. Hvernig er leyst úr þessu?

Kertafleyting

Kertafleytingin í gærkvöldi fór vel fram, enda við fáu öðru að búast. Sá haug af fólki sem ég hef ekki séð lengi, fleiri bloggara en ég get talið upp. Við fórum líka með bæði Evu og Svenna með okkur. Ég og Palli eyddum heillöngum tíma í að elta uppi Stefán en síðan kom í ljós að hann hafði fundist örfáum sekúndum eftir að við rukum af stað. Og Stefán gleymdi merkinu! Varð að gefa Evu mitt. Eva hafði reyndar þegar fengið eitt „Halldór í herinn og herinn burt“ en það var sérstaklega ætlað pabba hennar sem er frá Hriflu (þó ekki skyldur hinum fræga en samt í Framsóknarflokknum).

Var reyndar frekar slappur í gærkvöldi því ég þurfti að fara leiðinlegra verkefni en vanalega í vinnunni.

Myndirnar tókust ekkert sérstaklega vel í gær en hér er allavega ein.

Halda áfram að lesa: Kertafleyting

Hvalir og hundar

Mér fannst skondið að hlusta á útvarpið í gær þar sem var verið að tala um hvalveiðar. Þar var talað við einhvern hjá Greenpeace sem sagði („hélt því fram“ var sagt í fréttunum) að það væri bara yfirskyn að veiðarnar væru í þágu vísindanna. Seinna var talað við einhvern Samfylkingarþingmann sem sagði að það væri gott að byrja á einhverju svona til að prufa viðbrögðin. Greenpeacenáunginn og Samfylkingarþingmaðurinn sögðu semsagt báðir að vísindaveiðar væru yfirskyn en engum fannst nauðsynlegt að segja að Samfylkingarþingmaðurinn „héldi þessu fram“.

En hvað um það. Mér er sama þó hvalur sé veiddur, allavega þessar tegundir sem eru vel staddar, bara að reyna að halda þessu aðskildu frá hvalaskoðuninni. Hugsanlega með að hafa veiðibann á vissum svæðum.

Mér finnst líka alltílagi að Kínverjar borði hunda, mér er ægilega illa við að einhverjir viðkvæmir gæludýraeigendur á Vesturlöndum séu að væla yfir þessu þegar þeir komast að því að menningin er ekki alls staðar eins. Svo lengi sem þetta er ekki þinn hundur þá geturðu ekkert kvartað.

Nú geta Hjörvar og Árný gefið dóttur sinni hrefnukjöt sem ætti að verða skemmtilegt að útskýra.

Ég borða hvorki hund né hval enda er ég gikkur.

Guðni fokkings Ágústsson

Ég þoli manninn ekki. „En hann er svo fyndinn og gerir lífið skemmtilegra“ segja einhverjir. Vissulega eru þorpsfífl klassísk skemmtun en að maðurinn hafi völd er hættulegt. Var að hlusta á durginn í viðtali í dag og hann svaraði varla einni einustu spurningu, sneri útúr, fór að tala um hvernig heyskapurinn virkaði á heimili hans þegar hann fór ungur og svo framvegis. Flest sem hann sagði tengdist að vísu landbúnaði en það voru bara ekki svör við spurningunum.

Af hverju eru fréttamenn slíkir aumingjar að þeir þora ekki bara að endurtaka spurninguna og benda á að henni hafi ekki verið svarað? Íslenskir fréttamenn eru aumingjar.

Guðni Ágústsson er hirðfífl ríkisstjórnarinnar og hefur þann tilgang að draga athyglina frá vanhæfni hennar með fíflalátum og beljukossum. Sem minnir mig á að hann sagði að beljukoss sinn sýndi „gott hjartalag“ sitt. Hann er ekkert feiminn við segja frá því að honum finnist hann vera með svona gott hjarta. Beljukossinn hans minnir mig frekar á þessa þætti einsog Fear Factor þar sem menn gera viðbjóðslega hluti fyrir verðlaun, hans verðlaun var fjölmiðlaathygli og að hann dró athyglina frá málum sem skipta máli.

Losum okkur við hirðfíflið.