Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 31. mars 2005 klukkan 19:34

Fyrsti nefndarfundur búinn

Jæja, ég var á fyrsta nefndarfundinum. Hann gekk bara mjög vel. Ég sjálfur var reyndar ekkert vel undirbúinn. Ég ætlaði alltaf að skreppa til Auðar og fá upplýsingar um hvað var að gerast í Menntamálanefnd í fyrra en hef ekki fengið mig til að trufla hana í nýja starfinu.

Það var mest talað um þá hluti sem koma að prófunum. Ég stakk upp á því að tilkynningar um einkunnir verði sendar með tölvupósti. Annars var mest rætt um einkunnaskil og prófsýningar.

Í nefndinni eru með mér Árni og Stefanía úr Vöku en Inga og Dagga úr Röskvu. Ég er búinn að biðja Ásgeir um að vera varamaður minn í nefndinni. Það er reyndar ekkert spennandi verkefni fyrir Gambrann þar sem ég er vanur að mæta alltaf á alla fundi.

Miðvikudagur, 30. mars 2005 klukkan 12:34

Óraunveruleiki

Síðustu dagar virðast hálf óraunverulegir, ég mun gera þeim skil sem fyrst. En þetta var gaman. Paul Rodgers er enginn Freddie en það vissu allir, hann stóð sig hins vegar ákaflega vel. Mér þótti samt best þegar Roger og Brian voru í aðalhlutverkum.

Mánudagur, 28. mars 2005 klukkan 8:56

Tottenham Court Road

Jaeja, eg er i London. Ferdin gekk vel, kom vid hja Danna i Keflavik adur en eg flaug af stad. Eg var svoltid ringladur i undirgrundinni en thad reddadist. Thegar eg kom upp ur jordinni that tok Freddie a moti mer, Dominion leikhusid semsagt, risastor Freddiestytta. Kortid rugladi mig sidan og eg gekk Charing Cross i stadinn fyrir Tottenham Court Road, attadi mig a mistokunum og thetta reddadist ad lokum.

Hotelid er fint midad vid verd, meginparturinn af gestunum eru ungar stulkur. Eg fekk mer English breakfast i morgun og thad drap mig naestum. Nu er eg a leid ad British Museum eda Westminster eftir thvi hvernig skapi eg er i. Eg sit nuna rett hja Freddiestyttunni.

Sunnudagur, 27. mars 2005 klukkan 11:51

Allt að verða til

Ég er alveg að verða til. Kláraði líka skattaskýrsluna í gær.

Föstudagur, 25. mars 2005 klukkan 23:35

Skemmtilegi föstudagurinn

Þetta var nú óendanlega skemmtilegt. Við sýndum *Life of Brian* og staðurinn var pakkaður og fólk var farið að sitja á gólfinu. Myndin er náttúrulega snilld og hláturinn bergmálaði. Föstudagurinn langi hefur aldrei verið skemmtilegri.

Föstudagur, 25. mars 2005 klukkan 14:16

Lokað fyrir sárið

Jæja, talvan hefur staðið á gólfinu síðan í janúar opin fyrir öllu. Ég þurfti að hirða myndir af gömlum hörðum disk þannig að ég beið alltaf með það að loka henni en alltaf tafðist þetta. Ég kláraði þetta loksins af í nótt og nú er hún komin á sinn stað og ekki lengur fyrir öllum. Ég hefði mátt vera sneggri að þessu.

Nú er komið að því að sortera myndir. Held að ég eigi eftir að velja úr cirka 18 mánuðum til framköllunar, það eru nokkuð mörg þúsund myndir þarna. Verð að fara að drífa mig að klára þetta.

Fimmtudagur, 24. mars 2005 klukkan 23:46

Deja vu

Er ég nokkuð sá eini sem finnst þetta vera deja vu? Bobby kemur heim - Keikó kemur heim. Hver segir að við tökum ekki vel á móti flóttamönnum?

Fimmtudagur, 24. mars 2005 klukkan 23:21

Bobby heim

Dramatíkin í sjónvarpsfréttamönnunum var frábær. Ég skipti á milli stöðva og þeir voru í keppni um hver gæti verið hallærislegri. Þessi á Rúv var líklega aðeins verri, tók nokkur viðtöl og stoppaði fólkið alltaf þegar það ætlaði að segja eitthvað áhugavert. Ætli Bobby komi í Snarrót klukkan 20:00 að horfa á Life of Brian? Hver veit. Hvað ætlar maðurinn að gera hérna? Vinna í klukkunni sinni án afskipta bandarískra stjórnvalda og gyðinga? Þetta verður áhugavert.

Fimmtudagur, 24. mars 2005 klukkan 18:37

Sirkusinn á leið í bæjinn

Bobby Fischer á leið í bæjinn, kemur kannski um hálftíu. Það er næstum að maður skreppi yfir á flugvöllinn til að kíkja á þetta. Þetta er svo absúrd.

Fimmtudagur, 24. mars 2005 klukkan 14:08

Elli formaður

Eldri færslur »