Selma er drulluspæld. Hún segir líka að keppnin sé einsog sirkus… nú skil ég pælinguna á bak við búningana.
Day: 19. maí, 2005
Ekki kaupa sjónvarp í BT
Júróvisjon bömmer allra tíma. Ísland fær ekki einu sinni að vera með í aðalkeppninni. Ég játa að mér þykir þetta svoltið fyndið. Hvernig fer með öll partíin?
Logi og Gísli eru svo sárir. Þetta virðist allt vera búningahönnuðinum að kenna. Það gæti ekki verið að lagið sjálft hafi bara verið ómerkilegt…
Var Jesús yfirhöfuð til?
Í dag er grein eftir Frelsarann á Vantrú. Þar tekur hann fyrir hinn sögulega Jesú og gengur mjög snyrtilega frá honum.
Greifinn góður
Ég fór á Greifann á laugardagskvöldið. Ég pantaði mér hálfmána og þegar hann kom þá sá ég að það höfðu verið gerð mistök með matinn. Ég kallaði eftir þjónustustúlku og útskýrði málið. Þessu var bjargað, hún setti forgang á hálfmánan minn og bauð mér að hafa þann sem ég hafði fengið á meðan ég beið. Ég var ákaflega ánægður með þetta, maður lendir alltaf reglulega í að eitthvað fer úrskeiðis á veitingastöðum og það er misjafnt hvernig brugðist er við. Þetta var alveg til fyrirmyndar. Það spillti ekki fyrir að ég varð ekki var við reykingar á staðnum en það hefur stundum angrað mig. Það var líka búið að bæta við stóru glasi af Appelsíni á matseðill, áður var bara hægt að fá litla flösku.
Greifinn er semsagt góður. Ég hef stundum sagt það að maður geti ekki metið þjónustufyrirtæki á því hvernig það stendur sig þegar allt gengur vel. Það sem skiptir mestu máli er að ef eitthvað kemur upp á þá sé brugðist við því með þjónustulund og jákvæðni gagnvart viðskiptavininum. Þetta er það sem fær mann til versla aftur við fyrirtæki.
Skipt um tæki
Jæja, ég skipti um tæki í bílnum (alveg sjálfur sko), nú get ég skrifað mp3 geisladiska en ekki bara venjulega tónlistardiska. Síðan er hægt að nota USB-lykla í spilarann líka.
Álheimska
Mér þykir merkilegt að sumt fólk haldi að álverksmiðjur út um allt land sé góð hugmynd. Það er alveg ljóst að ef álverð hrynur einhvern tímann á næstu árum þá mun það hafa alvarlegar afleiðingar á efnahagslífið en samt vill fólk bætta við fleiri svona verksmiðjum. Það er ákaflega slæmt að treysta á svona einhæfan iðnað. Þetta er algerlega aðskilið frá umhverfisverndarsjónarmiðum.
Dáin

Fæddist í júní 1999 og dó 18. maí 2005
Við ákváðum að láta hana heita Zero eða Síró eftir laginu með Smashing Pumpkins en í raun var hún aldrei kölluð annað en Grísla. Við fengum hana þegar hún var örlítill hnoðri þegar við vorum nýbyrjuð saman. Þegar Grísla fæddist þá leit hún út fyrir að vera blind á öðru auga en það lagaðist. Mig minnir að við höfum fyrst séð hana 17. júní um það bil. Ég komst reyndar fljótt að því að ég er með ofnæmi fyrir naggrísum og gat því varla handleikið hana. Fyrir nærri tveimur árum fékk hún sýkingu í fæturnar og þurfti að fara á sýklalyf. Hún náði sér eiginlega aldrei af því. Síðan hefur fleira komið upp á undanfarið. Í fyrra fórum við með hana til dýralæknis sem hafði aldrei heyrt um jafn gamlan naggrís. En greyjið litla dó í kvöld, ég á eftir að sakna hennar. Hún var nærri sex ára.
