Andlegt sjálfstæði

Eygló er að lesa yfir lokapróförkina að Andlegt sjálfstæði og skellihlær mjög reglulega. Inn á milli talar hún um það hve vel þetta á margt við enn í dag. Hún bjóst ekki við að bókin væri svona góð.

Ég tel þetta lofa góðu.

Dýr lausn á ódýrum vanda

Núna áðan leysti ég vanda sem hefði líklega ekki þurft að kosta nema rétt tæpar 100 krónur fyrir rúmlega 20 þúsund krónur. Ég er hins vegar sáttur því í staðinn fyrir að hafa lekandi krana í baðinu er ég komin með þægileg blöndunartæki.