Helvítis páskar!

Í gærkvöldi sá ég mann opna bjórflösku með klaufhamri. Í gærkvöldi sá ég líka skrípaleikinn þegar Fischer lenti. Það má bersýnilega ekki hjálpa fólki gratis. Fyrst þarf að semja um einkarétt á sjónvarpsviðtali og heimildamynd. Ingólfur Bjarni Sigfússon var annars eftirminnilega fíflalegur. Raunar ekkert nýtt á ferðinni þar.

Í dag er föstudagurinn langi og einhver hálfviti er búinn að flagga í hálfa úti í garði. Dagar sem þessi fara samt síst í taugarnar á mér af trúarástæðum. Ég er tóbakslaus og það væri auðveldara fyrir mig að redda mér kókaíni en sígarettum. Í dag fást ekki sígarettur, sama hve miklu þú ert tilbúinn að eyða. Kókaínverð er hins vegar háð framboði og eftirspurn eins og fyrri daginn.

Þetta væri nú raunar ekki vandamál hefði ég átt peninga í gær. Desværre havde jeg inge. Jeg må tage mig til og stjæle nogle, men jeg ved ikke hvor de skal findes. Bah! For helvede!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *