Arngrímr lúfa er allr

Ég er frjáls! Sannur þræll veit að Tómas frændi hafði það helvíti fínt í samanburði við áþján eigin hárvaxtar, og gólfið hjá hárskerðinum (barbaranum?) var sem frumskógur eftir á. Ég hef áreiðanlega lést um einhver kíló.

Skugga-Baldur eftir S. Jón var góð, en sérstök. Hún er alls ekki við allra hæfi og mér finnst erfitt að mæla með henni. Kannski ekki síst vegna þess að ég veit ekki hvað heillaði mig við hana.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *