Fimmtán ár

Ég var að muna það rétt í þessu að í dag eru fimmtán ár liðin síðan Perla, í daglegu tali Kisa, kom heim með pabba af næturvakt. Aldrei hafði ég orðið eins glaður og þá. Hún var þegar kassavön þegar hún kom svo líklega hefur hún verið nokkurra mánaða, við bara vitum það ekki. Mér hefur alltaf þótt afskaplega vænt um hana og reglulega þurft að berjast fyrir að fá að halda henni, en hún hefur verið hjá mér svo lengi að ég veit ekki hvernig lífið yrði án hennar. Hún hefur átt góðan „afmælisdag“, litla dekurdýrið.

2 thoughts on “Fimmtán ár”

Lokað er á athugasemdir.