Mér finnst ég alstaðar vera að rekast á umræður um pylsur/pulsur. Málið er mjög einfalt, sbr. Pylsa er upprunalegur ritháttur, en /pilsa/ er unglegur framburður. Hefðarinnar vegna er því tækast að skrifa pylsa en segja pulsa.
~
Annars mæli ég með moggabloggsíu Konráðs. Hún er einföld í uppsetningu og forðar notendum frá heilatæringu af völdum almennrar lúnasíu, einnig nefnt Kvitt!;)syndróm.
ég segi myndi en ekki mundi
Ég segi pylsa en ekki pulsa, flakka milli myndi og mundi. Hvort tveggja á rétt á sér en telst engu að síður minnihlutaframburður.
Troddessari PULSU/PYLSU uppí óæðri endaþarminn á þér!
Kveðja,
Bjór
Svona eins og öfugt við æðri endaþarminn?
HAHAHAHA já bíddu ert þú ekki með tvo eins og Bjór Aggi??
Ég skrifa alltaf pylsa en segi pulsa… en hverjum er ekki sama…hahaha!
Sjálfsagt er flestum alveg sama, mér fannst ég bara alltaf vera að rekast á umræður um þetta á netinu og ákvað að svara því hérna í eitt skipti fyrir öll.
Ég held þetta sé ekki moggablogg hjá Konráði. Blogg.is er annað en blog.is. 😉
Vissulega er það ekki moggablogg, það er hýst á kj.is