Hafragrautur

Annað hvort er sérstakt trix að búa til hafragraut nema innihaldið samanstandi ekki eingöngu af mjólk, salti og haframjöli. Ógott, en ætt.

Latínukennarinn minn í MR kvaðst vakna sérhvern morgun á slaginu sex til að malla sér hafragraut. Eftir fimm diska af þeirri garpafæðu þyrfti hann ekki að borða neitt meira yfir daginn.

15 thoughts on “Hafragrautur”

  1. ég sýð grjónin alltaf í vatni, smá salt með. held að það sé almennt viðurkennd aðferð en vil ekki vera þröngsýn í svona mikilvægum málum.

  2. Þetta er þjóðþrifamál og enginn getur verið hlutlaus! Ég gerði það sem mér var uppálagt, en faðir er sjálfsagt enginn Jamie Oliver, þótt hann sé stundum nakinn – eða ég geri ráð fyrir að hann sé það stundum – bara helst ekki þegar hann eldar.

  3. Svo lengi sem maður ruglar þeim ekki saman. En aðferðin var þessi, leiðréttingar óskist snarlega:
    Sjóða mjólk með dash af salti. Láta liggja við hæga suðu og blanda haframjöli við og hræra uns maður er sáttur við þykktina. Borið fram í djúpum diski með skeið til handargagns.

  4. hér er önnur: sjóða grjón og vatn (hlutf. 1/2) 2-3 mín, örlítið salt út í vatnið.
    borið fram með púðursykri, kanilsykri, hvítum eða engum sykri og mjólk sem hellt er út á grautinn.
    svo er líka hægt að setja grjón og vatn (í skál) í örbylgjuna, spara uppþvott á potti.

Skildu eftir svar við Kristín Svava Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *