Horfði á þetta diskó í gær. Segið svo að ég fari aldrei í bíó …
Sjálfur var ég meira í „eldlínunni“ þegar náungi réðist að mér á Næstabar og krafðist þess að fá að skála við mig. Ég lyfti glasinu og hann kýldi glasinu beinlínis í mitt svo þau mölbrotnuðu yfir mig allan. Ég sat þarna forviða og horfði á náungann týna glerbrotin úr lófanum þegar Kristjón kom aftan að honum og fleygði honum út. Þegar ég loks fékk rænu til að líta í eigin lófa sat þar eftir stykkið úr glasinu sem ég hafði haldið í. Þá opnaði ég lófann alveg og það lak eins og sandur niður á borðið.
Fleiri voru ævintýri kvöldsins en þetta verður víst að nægja í bili.
Kærastan mín og ég vorum að velta því fyrir mér hvort þessi maður hafi verið sá sami og réðst á hana á Segafredo um daginn. Ef svo, þá á hann heima á geðdeild en ekki í gæsluvarðhaldi. Hvernig leit maðurinn út? Gastu greint hárlit og líkamshæð?
Ég sá hann ekki gjörla því ég var uppteknari af blóðugum verðinum, en mér virtist það vera ungur náungi. Þetta gerðist svo snöggt reyndar að það voru þegar komnir tveir aðrir til að halda honum og þeir huldu hann nær alveg.
Í DV kemur fram að náunginn hafi verið um tvítugt, sem þýðir að gæti verið milli 18 ára til þrítugs. Og kannski minnið sé að bregðast mér, en þetta er eitthvað öðruvísi en ég upplifði það:
Er þetta gaukurinn sem sat til borðs með okkur? Ég hélt að þú hefðir þekkt hann eitthvað.
Hvað man ég. Var það nokkuð? Sá náungi var farinn en þetta var bara einhver vitleysingur sem fékk að sitja um stundarsakir á undanþágu. Nema ég muni það öfugt.