Appelsína

„Matreiðslumenn eldhússins, Orange Lab. leika sér að helíum, fljótandi köfnunarefni og fleiri efnum úr lotukerfinu til þess að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt,“ segja Einar og Þórarinn og bæta við að hugmyndin á bak við Orange sé að upplifunin skili sér jafnt í skemmtun sem og bragði. (#)

Mér þykir nýstárlegt að leika sér að „efnum úr lotukerfinu“ til að framreiða mat. Kannski þeir missi óvart natrín ofan í klórblönduna í vaskinum og finni upp eitthvað næstumþví gagnlegt sem þegar fæst fullunnið í Bónus.

4 thoughts on “Appelsína”

  1. Ég vil ekki að það finnist efni úr lotukerfinu í matnum mínum!!!!
    Frekar en það finnist erfðaefni!!!
    Erfðabreytt matvæli og annað kukl! plah!!!

  2. Eitt sinn fór ég á veitingahús þar sem sást inn í eldhúsið. Þá varð ég vitni að nýstárlegri aðferð til eldamennsku, sem fólst í bruna ýmislegra efna úr lotukerfinu til að hita steikina mína.
    Hverju finna þeir upp á næst?

Skildu eftir svar við Ljóðamaður Hætta við svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *