„Matreiðslumenn eldhússins, Orange Lab. leika sér að helíum, fljótandi köfnunarefni og fleiri efnum úr lotukerfinu til þess að framreiða mat á nýjan og spennandi hátt,“ segja Einar og Þórarinn og bæta við að hugmyndin á bak við Orange sé að upplifunin skili sér jafnt í skemmtun sem og bragði. (#)
Mér þykir nýstárlegt að leika sér að „efnum úr lotukerfinu“ til að framreiða mat. Kannski þeir missi óvart natrín ofan í klórblönduna í vaskinum og finni upp eitthvað næstumþví gagnlegt sem þegar fæst fullunnið í Bónus.
Ég vil ekki að það finnist efni úr lotukerfinu í matnum mínum!!!!
Frekar en það finnist erfðaefni!!!
Erfðabreytt matvæli og annað kukl! plah!!!
það mundi hræða mig mjög ef einhver gæfi mér mat úr efnum sem ekki fyndust í lotukerfinu.
Eitt sinn fór ég á veitingahús þar sem sást inn í eldhúsið. Þá varð ég vitni að nýstárlegri aðferð til eldamennsku, sem fólst í bruna ýmislegra efna úr lotukerfinu til að hita steikina mína.
Hverju finna þeir upp á næst?
Það myndi líka hræða mig gífurlega ef einhver gæfi mér mat sem innihéldi ekkert erfðaefni.