íþróttaálfurinn kroppaði steininn úr eyrnalokknum mínum í gær ásamt því að bíta mig í eyrað. Skamm íþróttaálfur!!
Núna er ég því voða sæt með einn steinn í eyrnalokknum hægra megin og engan í vinstri lokknum! Pæja
Annars var hérna maður úti á svölum hjá mér að kroppa húð af svalahandriðinu (sem kom þegar húsið hliðin á var húðað að utan). Maðurinn sem sér um þá byggingu fær plús fyrir það að hafa komið á umsömdum tíma þ.e.a.s kl. 8 í morgun. Ég bjóst alveg eins við honum á föstudaginn!
Svona hefur maður mikla trú.
Það sést kannski að ég nenni ekki að læra?