Ég og Hlynurinn minn erum að fara á Argentínu í næstu viku til að halda upp á góðan dag, sem sagt afmælið mitt. Við ætlum að fara á jólahlaðborð sem við erum búninn að tala um síðan í fyrra. Við fórum þá og það var æðislegt…
Er búin að vera vinna m helgina í staðinn fyrir að læra. Fór í smá teiti til Helgu og Hildar á föstudaginn eftir að vera búin að vera á Magna og félögum tónleikunum. Hefði getað verið sáttari með tónleikanna verð ég að segja!!! Skellti mér í bæinn og djammaði af mér rassgatið einungis til þess að vera í góðu formi á laugardaginn…
Fór til Óla og Eyglóar á laugardaginn að skera laufabrauð, skrapp í tvo tíma þar sem ég var að vinna. Það er langt síðan ég skar laufabrauð en það er alltaf jafn gaman, ég hef samt ekkert hugmyndaflug á við það sem ég hafði þegar ég var yngri, ég skar bara endalausar línur núna! Óli og Eygló…Takk fyrir mig 🙂