Þar sem ég á bráðum afmæli þá finnst mér tilvalið að láta fólk vita hvað mig langar í í afmælisgjöf ef einhver ætlar að gefa mér svoleiðis.
Mig langar t.d. í þráðlausan heimasíma, fallega lampa í svefnherbergið, verk á veggina mína (en bara ef þau eru búin til sérstaklega handa mér). Svo langar mig í góða lykt, hring, hlýja peysu, náttföt, sokka eða rúmföt.
Mig langar líka í diskana Þjóðlög með Ragnheiði Gröndal og Please don´t hate me með Lay Low. Einnig fullt af bókum og má þar helst nefna Sögu jólanna.
Núna er ég búin að skrifa nógu langt sjálfselsku blogg en ég vona að þetta gefi þeim sem þetta lesa hugmyndir fyrir gjafir handa mér. Af því að ég er svo sæt og æðisleg og á skilið að fá pakka 🙂