Ég fékk skammir í gær fyrir að vera ekki búin að blogga lengi. íšr því verður bætt núna.
Helsta sem mér datt í hug að blogga um (eða eiginlega stelpunum) er að tilkynna það að núna eftir langa bið á ég loksins klósett sem virkar aftur. Það er gleðiatburður í mínu lífi. Fyrir þá sem ekki vita þá lifðum við Hlynur í of langan tíma með bilað klósett. Það virkaði þannig að það var fata inn á baði og það þurfti að fylla hana af vatni til að sturta niður. Þá leið mér eins og ég byggi í hjólhýsi. Þið getið því skilið gleði mína núna þegar hægt er að sturta niður á venjulegan máta 🙂
Þess má einnig geta að í sömu ferð þá fjárfestum við í nýjum sturtuhaus, sá gamli var farinn að sprauta ansi mikið til hliðanna líka.
Þannig nú ríkir gleði á baðherberginu á þessu heimili. Reyndar höfðu þessar breytingar í för með sér að nú langar mig að breyta öllu inn á baði en það verður víst að bíða betri tíma og meiri peningaumráða 🙂
En svo þegar ég velti meira fyrir mér hvað ég ætti að blogga um þá fattaði ég það að klósettmálin eru ekki það stærsta sem hefur gerst í lífi mínu síðan síðast (ég veit, ég lifi tilbreytingarlausu lífi og það þarf lítið til að kæta mig).
Stærsti atburður ársins til þessa er að sjálfsögðu brúðkaupið hjá Stefaníu vinkonu minni og Hjalta.
Það var mjög falleg athöfn og gaman í veislunni, þó við höfum gert okkar besta til að gera okkur að fíflum 🙂
Það má líka taka það fram að ég borðaði í fyrsta skipti í Perlunni í gær eins og fín kona og verð að segja að ég kann ekkert ofboðslega vel við snúningin og kunni heldur ekki við það að fá ekki súkkulaðimola með kaffinu að máltíð lokinni!