Ég vaknaði alltof snemma á sunnudagsmorgni til að fara á hundasýningu í dag…
Sem er ekki frásögufærandi nema að ég man ekki hvenær ég vaknaði síðast svona snemma á sunndegi…
Allavega, þá náði systir mín og hundurinn hennar frábærum árangri á sýningu. Leó varð besti hundur sinnar tegundar og varð í 3. sæti yfir alla hvolpa 🙂
Ég er búin að vera dugleg að fara í afmæli og teiti þessa dagana, fór í tvö afmæli um helgina, eina útskrift um seinustu helgi og eitt afmæli í viðbót helgina þar á undan. Mjög mikið að gera hjá mér…
En það er nú samt bara gaman.
Það reynir svolítið á heimalærdóm að hafa svona mikið að gera en þetta reddast allt á endanum hlýtur að vera:)