Hvalveiðiskoðun

Í fréttunum var talað um að það væri erfitt að veiða hvali vegna þess að bátar með fréttamönnum væru of nálægt. Eygló kom þá með frábæra uppástungu, hvalveiðiskoðun. Þetta myndi slá í gegn, fullt af nötturum gætu komið hingað til að sjá hvalina veidda. Til að gera þetta meira spennandi væri hægt að sleppa nákvæmnisskotum og reyna að fá smá Jawsfíling í þetta, almennilegan eltingaleik. Síðan geta ferðamennirnir étið hval eftir á. Algjör snilld.

Það væri hægt að rukka ógnarfjárhæðir fyrir þetta. Síðan heldur fólk því fram að ferðamennska og hvalveiðar geti ekki virkað í sameiningu.

Fréttir

Var að horfa á fréttirnar á RÚV áðan. Húsið brann ofan af Sverri Stormsker, þið afsakið ef ég gef ekkert í væntanlega söfnun. Íþróttafréttamaðurinn sem hefur ákveðið að reyna miðaldraskeggið aftur talaði um að Rachel Green væri í einhverju íslensku fótboltaliði en leiðrétti sig síðan eftir á. Sumir hafa kannski verið að horfa á aðra sjónvarpsstöð.

Hata, hata, hata Windows

Þó ég hafi verið mjög menningarlegur í gær þá eyddi ég fyrst heilmiklum tíma í tölvuvesen. Ég var að láta upp sjónvarpskort og skjákort með sjónvarpsútgangi. Ekkert gekk vel, ég var heillengi að fatta skjákortið (sem þó hefur marga skemmtilega möguleika) en sjónvarpskortið vildi ekki virka. Náði að vísu mynd með lélegu forriti en ekki forritinu sem fylgir með kortinu. Það var ekki fyrren í dag sem ég var að fikta að ég sá vandamálið.

Þegar Windows er að láta inn kortið þá sagði ég henni að leita að driverunum (reklunum einsog enginn kallar þá) á geisladisknum sem fylgdi með kortinu, mistök mín voru að ég sagði Windows ekki að það „ætti“ að nota driverana á þessum disk. Í stað þess að nota driverana sem eru sérhannaðir fyrir kortið ákvað Windows að taka einhverja drivera sem því fannst henta miklu, miklu betur til þessara þarfa.

Ég var svo pirraður, af hverju þarf Windows endilega að reyna að hafa vit fyrir manni í svona málum? Ég hef lent í þessu áður þegar ég var að láta inn netkort, þá setti Windows bara inn einhverja drivera sem voru ekkert að virka. Skjóta þetta lið. Endurhanna þennan orm og beina honum að microsoft.com.

Allt er að fara að virka núna þó ég þurfi að finna leið til að framkvæma stillingabreytingar með einum hnappi en það kemur.

Menning eða svoleiðis

Ég fór niður í bæ í gær til að taka þátt í Menningarnótt. Byrjaði á að legga einhvers staðar rétt hjá BSÍ, hefði getað lagt nær en mér er bara ægilega illa við að leggja á grasi og gangstéttum. Fór á Bókasafnið og hló að Eygló, fór í TopShop húsið með það að markmiði að spyrja Ármann hvort Tinni væri hommi en hann fékk greinilega ekki að vera þar allan daginn. Fór aftur á bókasafnið og skrifaði færslu sem birtist seint og síðar meir.
Eygló fékk að fara fyrr úr vinnunni þannig að vorum komin út um klukkan níu. Þá gerðum við þau mistök að fara á Hlöllabáta þar sem við fengum ömurlega þjónustu og vondan mat frá dónalegum sveittum kalli.

Næst skreytti ég eina styttu bæjarins á leið okkar að sjá Eivöru í Kaffileikhúsinu. Allt var fullt í Kaffileikhúsinu þannig að við gátum ekkert séð. Röltum uppeftir til að reyna að kíkja svona einu sinni í Nexus en þeir eru greinilega hættir að hafa opið frameftir. Röltum niður með sjávarsíðunni þar sem einhver gerði tilraun til að myrða mig með ofurhálum flísum í kringum listaverk (hugsanlega eru þær þar til að koma í veg fyrir að fólk misþyrmi listaverkinu).

Sáum eld kvikna og fórum í áttina að honum en þar sem þetta var hættulítill eldur stoppuðum við ekki lengi þar. Horfðum á ljós og hlustuðum á hávaða í of langan tíma og röltum síðan heim til Nils.

Heima hjá Nils var mikið af fólki sem við þekktum ekki og flestir þeir sem við þekktum af hans vinum (fyrir utan „nýju“ kærustuna) voru annars staðar. Maður sem mér sýndist vera fréttamaður (á stöð sem ég horfi ekki á) kom í partíð í leit sinni að myndlistasýningu (eða það hafi bara verið fyrirsláttur). Ég spjallaði annars dáltið við einn fræga vin hans Nils og einnig pabba hans um fornleifafræði (og fleira). Eygló var komin úr öllu stuði fyrir klukkan eitt og þá fórum við sem er líklega ágætt því ég var örugglega einkar óáhugaverður þó ég hafi einmitt verið að reyna hið gangstæða. Vonandi voru allir sem ég talaði við of fullir til að muna hvað ég sagði.

Vorum komin heim á nær nákvæmlega sama tíma og í fyrra þó að þá hafi klukkutíma verið eytt í leiðinlegan umferðarhnút.

Ég tók dáltið af (ekki óhóflega margar) myndum og setti á netið sem er skemmtilegt að skoða með hliðsjón af frásögninni.

Barátta trúleysingja fyrir jafnrétti

Má finnst ekki þörf á að ráðast harkalega á kristna trú einsog við „herskáu“ trúleysingjarnir (minnir að Douglas Adams hafi kallað sig það) gerum. Hann lítur alveg framhjá því að við hinir trúlausu höfum ástæðu til að vera reiðir við þá kristnu, biskup Íslands ræðst harkalega á okkur og greinar sem svara ásökunum hans fást ekki birtar. Jónína Ben segir að trúleysi sé ástæða þess að það sé níðst á börnum þó fullsannað sé að oft eru gerendurnir kristnir, myndi svipuð grein frá trúleysingja fást birt í dagblaði?
Við þurfum að borga undir Þjóðkirkjuna, kristnihátið, kristnihátíðarsjóð, við þurfum að borga fyrir kristinfræðikennslu sem er í raun ekkert nema trúboð, menntakerfi sem á að hafa kristið siðferði sem grundvöll, höfum forseta sem er yfirmaður kristinnar kirkju. Okkar siðferði er talið óæðra siðferði hinna kristnu, opinber stefna ríkisins og kirkjunnar er í raun að við séum verra fólk en hinir kristnu.

Við erum litnir hornauga í samfélaginu þegar við tökum ekki þátt í kirkjulegum athöfnum (brúðkaupum, skírnum, fermingum) sem Íslendingar fylgja hefðarinnar vegna. Við þurfum að berjast til að koma í veg fyrir það ranglæti sem börn trúlausra (og þeirra sem eru af annari trú) verða fyrir í skólum. Við verðum að svara þeim áróðri sem dynur á þjóðinni úr öllum áttum, í raun úr það mörgum áttum að fólk tekur varla eftir því.

Trúleysingjar hafa verið ofsóttir af kristinni kirkju síðan hún var stofnuð og það er fullkomlega eðlilegt að við stöndum á fætur og bendum á hve óeðlileg, hve órökrétt, hve ranglát og vond þessi trú er raunverulega (lesið Biblíuna). Við náum engum markmiðum okkar ef við óttumst að særa tilfinningar hinna kristnu, þeir hafa fótumtroðið okkur í gegnum tíðina og gera það enn.

Ég held áfram þeirri baráttu sem „herskáir“ trúleysingjar hafa haldið uppi í gegnum tíðina, ég er þeim ólýsanlega þakklátur því ef kristni hefði jafn mikil ítök í heiminum og áður fyrr þá værum við mun verr stödd („There was a time when religion ruled the world. It is known as The Dark Ages.“ – Ruth Hurmence Green). Ég er þó sérstaklega þakklátur Nietzsche sem náði til mín þegar ég var svona 10-11 ára með einni setningu og útskýrði fyrir mér að það væri enginn guð, ein setning á dugði gegn öllum trúboðstilraunum sem gerðar voru á mér sem barn (aðallega í gegnum skólastarf).

Við erum fúl, við erum harkaleg en við höfum góða ástæðu og réttlátan málstað.