Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 23:27

Mitt svokallaða líf

Jæja, við höfum lokið við að horfa á My So-Called Life. Við byrjuðum líklega í lok maí eða byrjun júní. Í allt eru þetta bara 17 þættir en við vorum líka að fara í gegnum Friends á sama tíma.

Díllinn var að Eygló horfði á Godfather í staðinn. Það tók mun fyrr af.

Þetta voru alveg ágætir þættir en stundum alveg kvöl og pína að horfa á. Unglingavandamál eru erfið áhorfs.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 15:38

DC++ dómurinn

Dómurinn er hundlangur og ég hef ekki getað lesið nema rétt aðeins úr dómsorðinu. Það sem vekur athygli mína er að samtökin sem höfðuðu málið fá þann tölvubúnað sem lagt var hald á. Ég sá ekkert um að það væri skilyrt á nokkurn hátt. Ég geri ráð fyrir að í allavega einhverjum af þessum tölvum hafi verið eitthvað magn af persónulegum gögnum sem koma málinu ekkert við. Mega starfsmenn samtakanna núna bara farið að gramsa í þessum gögnum? Ég er ekki að segja að ég geri ráð fyrir að það verði gert heldur er ég að spyrja hvort að það megi. Sama hver á hlut að máli þá ætti í engum kringumstæðum að veita óviðkomandi aðgang að persónulegum gögnum.

Sér einhver eitthvað í dómnum sem kemur í veg fyrir þetta?

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 14:50

Átakafundi lokið

Það lítur út fyrir að Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga lifi af. Ég fór ekki á fundinn enda fékk ég ekki fundarboð. Held samt að ég hafi verið samþykktur inn í félagið.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 13:09

A eða B?

Ég get í raun valið hvenær ég mæti í vinnuna á morgnanna. Ég hef valið að mæta klukkan átta. Raunar skiptir máli að Eygló mætir í vinnuna á sama tíma og við förum saman í Strætó yfirleitt en það er samt ekki aðalatriði. Mér finnst bara vinnudagurinn líða fljótar og betur þegar ég byrja fyrr.

Mér finnst líka þægilegt að búta vinnuferli niður á þennan hátt, löng skorpa, stutt skorpa. Ég veit ekki hvort þetta segir eitthvað um hvort ég sé A- eða B-manneskja. Ég er nefnilega fullkomlega glaður með að sofa fram að hádegi þegar ég hef frið til þess. Reyndar gerði ég líka heilmikið af því þegar ég var á Írlandi. Það er eiginlega merkilegt að ég komist uppúr bólinu yfirhöfuð eftir að hafa vanist því.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 11:07

Gengisbrask

Seinni hluti Erasmusstyrksins er kominn í hús. Sökum hærra gengis hef ég grætt um fimm þúsund krónur á seinagangi Íra. Ég á enn eftir að fá tryggingagreiðsluna mína fyrir Arcadia Hall til baka. Spurning hvort að gengishækkunin verður eitthvað gengin aftur eða hvort ég græði bara enn meira á því. Spennó.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 9:36

Nýja Blogggáttin

Ný útgáfa af Blogggáttinni er komin í gagnið. Ég er mjög ánægður með breytingarnar á aðalsíðunni. Þessar aukalegu upplýsingar sem þar er að finna eru skemmtilegar. Það er líka gott að losna við rammann þegar maður notar Gáttina sjálfa til að fara á síður. Það er hins vegar verra að hafa ekki losnað við það alveg. Ég nota Blogggáttina í hliðarglugga í Firefox og festist því í römmum. Ekki gott. Það er hins vegar ekkert slæm hugmynd að hafa svona handahófsbloggvísun í rammanum.

Mánudagur, 3. mars 2008 klukkan 8:16

Afmæli Eyglóar

Til að halda upp á afmælið hennar Eyglóar gerðum við ýmislegt smátt og stórt. Eftir að við k0mum okkur á fætur fórum við niður í Bakarameistarann í Mjódd. Maturinn góður að vanda en þjónustan frekar fjarri því að vera fullkomin. Ekki slæm beinlínis samt. Meira eins og enginn þjálfi afgreiðslustúlkurnar.

Ég tók síðan síðdegið í duglegheit og skrifaði alveg stórskemmtilegan kafla í ritgerðinni minni. Skruppum síðan til Stebba og Steinunnar og náðum í pakka sem Eygló átti þar.  Fórum næst út í Garðabæ, eða Ikeahverfið, og kíktum í Hooby Room. Það var skemmtileg verslun. Mig grunar samt að það gæti komið þeim illa að þeir hafa of mikið af dýrum hlutum en ekki nóg af ódýrari vörum. En ég gæti alveg eytt pening þarna.

Kvöldmat borðuðum við í Síam í Hafnarfirði. Maturinn var góður og ódýr, við kláruðum ekki einu sinni gjafakortið. Ég keypti mér nauakjöt í rauðu karríi sem flokkaðist sem meðalsterkt. Ég er feginn að ég prufaði ekki mjög sterku réttina þarna.

Við fórum næst eftir ábendingu Sigga og fengum okkur McFlurry í eftirrétt (gott til að kæla sig). Ekki stóð flörríið undir væntingum en allavega náðum við að keyra aukahring í kringum McDonalds þarna á Smáratorgi af því við kunnum ekki á kerfið. Sjálfur hef ég ekki verslað við þetta fyrirtæki hér á landi síðan ég fékk versta hamborgara sem ég hef smakkað hér á landi fyrir nokkrum árum í Austurstræti.

Litum síðan inn til Rósu og spjölluðum við hana og Davíð áður en við fórum heim og horfðum á afmælisgjöf síðasta árs, My So-called Life.