Í morgunsárið voru keyptar tátiljur á þá sveimhuga og hlaupa/fótboltaskór á þann skapmikla – auk helgarinnkaupanna. Þann stutta tíma sem frúin og sá skapmikli höfðu heima fyrripartinn var hann klipptur og skartar nú skotti.
Eftir að stelpur voru sóttar var grauturinn etinn í snarhasti, því sú snögga átti að vera mætt á fimleikaæfingu klukkan tvö og sú sveimhuga klukkan þrjú. Æfingarnar gengu vel og var voða gaman hjá þeim báðum, sá skapmikli að sjálfsögðu brjálaður yfir því að vera ekki líka í fimleikum.
Eftir seinni tímann var bóndinn sóttur og farið á leikskóla þeirrar snöggu þar sem sumarhátíð hófst klukkan fimm. Hún byrjaði með trukki – því rétt þegar allt átti að fara í gang kom þrumuveður og ausandi rigning svo allir fóru inn á deildir í um hálfa klukkustund. Svo slotaði regninu og hátíðin hófst. Ýmsar stöðvar voru í boði, alls konar málningarvinna, föndur og leikir. Sá skapmikli fann sér gröfu sem hægt var að sitja á og moka og voru foreldrarnir vinsamlegast beðinir um að vera ekki að trufla hann við vinnuna.
Svo var grillað, fjársjóðsleit í einum sandkassanna og ís í eftirrétt. Aldeilis frábær sumarhátið.