Graskersmyndir Posted byarny 27. september, 2009 Eitt svona aðmírálsfiðrildi kemur gjarnan í heimsókn í garðinn okkar - stundum eru þau reyndar 2 eða 3. Svona voru flíkurnar merktar á krakka flóamarkaðnum, að vísu voru miðarnir mjög misjafnir eftir seljendum. Séð yfir Gúlliver og fleiri ævintýrafígúrur, skreyttar graskeum. Bakhlið einnar hallar álmunnar, mjög flottur blómagarður þarna með gosbrunni í miðjunni. Skreyttur brunnur. Sigurður og Fáfnir. Lína og litli karl. Á leiksvæði mátti leika í hálmi, krakkarnir fengu að vera berfætt en þeim skapmikla leist aldeilis ekki á svoleiðis subbuskap. En þær systur skemmtu sér konunglega. Að sjálfsögðu voru nokkur svæði þar sem hægt var að bleyta sig, froskarnir með gullboltana voru einn af þeim.