Af mér er allt fínt að frétta. Var að koma heim frá Dalvík, lét mig að sjálfsögðu ekki vanta á Fiskidaginn mikla. Þar var fullt af fólki og mikið fjör:) Skemmti mér mjög vel. Eiginmaður minn lét sig ekki heldur vanta og hittumst við á Dalvíkinni á fiskisúpukvöldinu.
Hrafnkell kom suður um verslunarmannahelgina en ég var að vinna svo við sáumst nú lítið nema á kvöldin. Fórum á Simpson myndina í bíó og út að borða, held það sé það eina sem við hjónin gerðum. Hrafnkell kíkti í partí á laugardagskvöldinu en ég fór bara að sofa.
Annars átti eiginmaður minn afmæli 2. ágúst svo ég óska honum aftur til hamingju með afmæli:)
Svo er búin að vera barnasprengja undanfarið:
Sverrir og Ingveldur eignuðust stelpu 23. júlí. Til hamingju með hana:)
Inga Jóna og Siggi eignuðust strák 24. júlí. Til hamingju með hann:)
Jóna Rut og Jói eignuðust strák 26. júlí. Til hamingju með hann:) Sólveig til hamingju með litla bróðir.
Kristín og Trausti eignuðust stelpu 2. ágúst. Til hamingju með hana:)
Þrúður og Tóti eignuðust stelpu 3. ágúst. Til hamingju með hana:) Hjörtur Einar til hamingju með litlu diddu.
Silla systir og Filli eignuðust stelpu 9. ágúst. Til hamingju með hana:) Helgi Fannar og Pétur Snær til hamingju með litlu diddu.