Ég er á minni fyrstu næturvakt núna í vinnunni og eins og þið getið ýmindað ykkur, þá er ekkert að gera.
Á miðvikudaginn síðasta fór ég með vinnunni út að borða á DOMO www.domo.is
Mæli alveg hiklaust með þessum stað. í fordrykk fengum við geggjaðan drykk sem ég veit ekki hvað heitir. í forrétt fengum við sushi, risarækjur og sashimi og með því japanskt hvítvín. í aðalrétt fengum við nautakjöt og lúðu og með því ástralskt rauðvín. Eftirrétturinn var einnig rosalega góður og ísvínið sem við fengum með því var alveg geggjað.
Á laugardagsmorgun fórum við saumaklúbburinn í sumarbústað í sól og blíðu. Við stoppuðum á leiðinni og fengum okkur ís og borðuðum hann úti. Fljótlega eftir komuna þangað var kíkt í pottinn. Potturinn bjargaði mér alveg, þar sem ég var að drepast úr strengjum síðan deginum áður. Við stelpurnar elduðum mjög góðan mat og horfðum á söngvakeppni framhaldsskólana. Síðan var aftur skellt sér í pottinn og verið fram á morgun þar;) Þar sem við lágum í makindum í pottinum fór að snjóa. Daginn eftir þegar við ætluðum að fara að leggja í hann(sólahring eftir komuna í bústaðinn) Tókum við eftir að við þurftum að vaða snjóinn að bílunum og grafa bílana út. Það tók okkur klukkutíma að komast af stað vegna þess að annar bíllinn fór ekki í gang og við festum okkur nokkrum sinnum. En með skóflu og startkapla var okkur allir vegir færir;) Við komumst þó heim og ég fór beint heim að ná í Hrafnkel og við fórum í mat til Sillu systir og fjölskyldu. Fengum rosalega gott lambalæri og allt tilheyrandi gumms með. Við fjögur sátum svo og spiluðum langt fram á kvöld.