Við hjónin erum búin að bregða okkur til Orlando og erum komin aftur heim. Við áttum yndislegan tíma úti og nutum lífsins í botn. Vildum ekki koma heim heldur setjast þarna að. Það var þó mjög ljúft að koma heim því heima er best:) Veðrið var yndislegt, verðlagið frábært og úrvalið af öllu stórkostlegt:) Við fórum í 4 skemmtigarða, fullt af búðum, prófuðum allskonar mat, sáum eldflaug skotið á loft,fórum á ströndina, lágum í sundlauginni sem var í garðinum okkar og nutum lífsins. Við hjónin fórum líka tvisvar í bíó, fyrst fórum við að sjá The Chronicles of Narnia: Prince Caspian, mjög góð mynd og síðan fórum við að sjá sex and the city og hún er líka mjög góð. Það kostaði ekki nema 450 kr á manninn að fara í bíó þarna. Halló á Íslandi þá borgum við F!##$% 1000 kall. Hvað er málið með það???
Svo það sé skjalfest fyrir einhverja sem lesa þetta og halda að ég sé vond að draga eiginmanninn á svona mynd. Þá var það Hrafnkell sem var búinn að bíða eftir sex and the city myndinni og dró mig með sér á hana ekki öfugt.
Svo átti ég afmæli 4 júní og fékk ég ameríska afmælistertu og afmælissöng líka. Meira að segja fékk ég tvisvar afmælissöng þennan dag, einu sinni í gegnum síma alla leið frá Íslandi.
Hrafnkell gaf mér myndavél í afmælisgjöf, sem var keypt á þriðja degi svo ég tók fullt af myndum sem eru komnar í tölvuna en ekki inn á netið. Ég mun vinna í því mjög fljótlega.
Við komum svo heim á föstudeginum 6. júní. Þá var farið heim að sofa enda allir dauðþreyttir eftir langt ferðalag. Tengdó fóru svo til Akureyrar á laugardeginum. Ég vil bara nota tækifærið og þakka tengdafjölskyldunni og æðislega manninum mínum fyrir frábæra ferð;)
Á laugardeginum var svo Rósa sæta gæsuð og var hún send í stúdíó og látin taka upp lag þar. Við fórum með hana í mecca spa og sendum hana í meðgöngunudd á meðan við lágum í lauginni. Síðan skáluðum við fyrir henni í pottinum og borðuðum ávexti og súkkulaði. Síðan var haldið út að borða og eftir það fóru einhverjir í partý heim til mágkonu Rósu. Ég fór heim eftir matinn til að aðstoða minn heittelskaða við að pakka niður því um hádegisbilið á sunnudag fór Hrafnkell austur á Skriðuklaustur og verður þar næstu 11 vikurnar.
Ég er búin að vera á næturvakt alla vikuna og er núna á sjöundu næturvaktinni sem venjulega ætti að vera mín síðasta en ég tók eina auka næturvakt næstu nótt. Ég fæ svo 6 daga frí eftir þetta og síðan tekur morgunvakt við í tvær vikur.
Hrafnkell kom seint á fimmtudagskvöldið og er búinn að vera heima alla helgina, hann keyrði austur í dag. Það var æðislegt að hafa hann heima um helgina en hefði verið skemmtilegra ef ég hefði ekki verið að vinna öll kvöld og allar nætur.
Sumarið lítur annars bara vel út og við erum boðin í 3 brúðkaup í sumar, líklegast komumst við þó bara í tvö. Svo er innan við mánuður í okkar fyrsta brúðkaupsafmæli:)