Tarantino og ég

Fór í gær á Kvöldstund með Tarantino og sá þrjár Kung fu myndir. Ég hafði einmitt giskað á að þetta yrðu þrjár Kung fu myndir enda er það fín tilvísun í True Romance. Mér bauðst semsagt að kaupa miða í forsölu og tók þá sex miða til að geta haft skemmtilegt fólk í kringum mig. Það voru semsagt Ásgeir, Siggi, Hjördís, Nils og vinur einkabílsins sem komu með mér. Eygló hafði ekki áhuga þar sem hún á erfitt með að endast í gegnum svona margar myndir.

Myndirnar voru skemmtilegar, síðasta myndin var reyndar áberandi best. Tarantino var stórskemmtilegur inn á milli. Hann var líka að spjalla við fólk á milli en ég lét vera að reyna troða mér nálægt honum, örugglega ótal margir sem reyndu það. Sá líka fyrir mér að maður yrði þarna að rembast við að segja eitthvað hnyttið eða gáfulegt umkringdur fólki sem væri líka að reyna það sama.

Það var mikið af fólki sem ég þekkti þarna, meðal annars Marvin sem hefði átt að vera heiðursgestur miðað við hve vel er níðst á nöfnum hans í myndum Tarantino. En þetta var allavega skemmtilegt kvöld.

Í DV með Særúnu

Þegar ég var að fljúga heim í gær þá kíkti ég yfir sætið fyrir framan mig og sá að það var vitnað í færsluna mína um jólakortin. Keypti náttúrulega blaðið. Þegar ég skoðaði það í návígi sá ég að neðar á síðunni var vitnað í Særúnu líka. Gaman.

Eigingjarna genið

Þegar námsbækurnar hafa verið lagðar til hliðar, að mestu, og fyrsta jólabókin étin upp þá var tími til kominn að lesa aðeins í The Selfish Gene. Ég er nú vel á veg kominn með þetta og ég verð að segja að bókin hefur opnað augu mín. Það er augljóst að sýn mín á líffræði og þróunarkenninguna sérstaklega hefur breyst en líka á félagsvísindin.

Jólakortin

Þá er maður búinn að fá að vita hverjir sendu okkur jólakort. En og aftur tókst það ætlunarverk okkar að fá engin jólakort frá fólki sem við sendum ekki kort. Sendum samt mun fleiri kort en við fengum.

Játningar

Í gær kláraði ég Játningar Láru miðlils. Mjög góð bók það. Höfundurinn lætur sér ekki nægja að nota hið stóráhugaverða handrit sem Lára skrifaði sjálf heldur gerir vel í því að elta upp aðrar heimildir.

Forvígismenn fáfræðinnar

Á Netmogganum og Vísi má annars vegar sjá mynd af páfanum og hins vegar Karli biskupi. Biskupinn neitar því að fæðingarsaga Jesú sé helgisögn. Það er bara rangt hjá honum, saga fellur fullkomlega í þann flokk. Báðir tala fulltrúar fáfræðinnar gegn skynsemi. Skynsemi og trú eru ekki tvær leiðir að þekkingu. Trú er leið fáfræðinnar.

Fulltrúar fáfræðinnar nota sömu þreyttu gömlu klisjurnar um að opna hjartað og um „ljós“ trúarinnar. Fari þeir til fjandans. Skynsemi og vísindi eru kertalogi gegn myrkri trúarinnar.

Gleðileg jól!

Ég er búinn að horfa á Muppet Family Christmas og Muppets Christmas Carol sem þýðir að það hljóta að vera koma jól. Óska þar af leiðandi öllum lesendum mínum gleðilegra jóla. Látið ykkur líða vel.

Myndarmyndir

Það eru komnar aðeins fleiri myndir inn á 123 (þið sendið bara beiðni til að fá lykilorðið). Jólatrésskreytingarmyndir og myndir frá fjölskyldupartíinu í gær. Hugsanlega meira af myndum í kvöld.

Jólaskap á síðunni

Ég er búinn að láta síðuna í jólabúning. Aðalverkið var að breyta myndunum. Núna koma hér handahófskennt myndir af mér að skreyta jólatréið.

Í dag kláruðum við jólakaupin, reyndar var síðasta gjöfin sem keypt var handa mér. Áðan fórum við til Árnýjar þar sem var heilt fjölskyldupartí að taka á móti Önnu systur frá Svíþjóð. Hún hafði vægast sagt óvæntar fréttir, ég hafði reyndar fengið fyrri hluta þeirra í gær en það var meira eftir…

Við skutluðum Önnu síðan á flugvöllinn og hittum þar meðal annars Særúnu.

Áðan skreyttum við síðan jólatréið, höfðum einmitt keypt skraut á það í dag.

Að Andkristnihátíð lokinni

Áðan var ég á Andkristnihátíð í fimm tíma. Gaman en ég var samt orðinn þreyttur undir lokin. Þegar við komum á staðinn kom í ljós að Vésteinn hafði gleymt trúfélagsskráningareyðublöðunum. Við veltum því fyrir okkur hvað við skyldum gera og að lokum fengum við Eydísi til að passa bolabásinn á meðan við skruppum. Það var eins gott að við náðum í blöðin því fjöldi manns var tilbúinn til að skrá sig úr þjóðkirkjunni. Gleði. Siggi Pönk tileinkaði mér, eða Vantrú, lag. Við vorum sérlegir gestir hátíðarinnar. Nú er ég þreyttur og aumur.

DV í gær

Karen í DV í gær:

Stund sannleikans Ég er farin að efast um hæfileika mína sem uppalanda. Mér finnst mínir nánustu til að mynda benda mér fulloft á að horfa á þáttinn um ofurbarnfóstruna sem skelft hefur margt foreldrið. Ég hef stundum prófað aðferðir hennar en með litlum árangri. Ef til vill verð ég að tala með breskum hreim til að þetta gangi upp, orð ofurbarnfóstrunnar virðast nefnilega oft verka á börnin eins og galdraþulur. Líklega missa þær máttinn við að vera yfirfærðar á annað tungumál. Systir mín reyndi að minnsta kosti nokkrum sinnum að eiga við barnið mitt með ráðum sjónvarpsfósturnunnar en með litlum árangri. Ég hefði átt að átta mig á því að við vorum óvelkomin þegar sögur hennar af umskiptingum fóru að verða fremur fyrirferðarmiklar í umræðunni. Það verður þó að viðurkennast að ég er ekkert sérstaklega nösk í svona málum, að minnsta kosti rann sannleikurinn ekki upp fyrir mér fyrr en ég rak augun í samtal hennar og félaga á msn-spjallþræði. Þar stóð skýrum stöfum: „Ég kemst ekki neitt því systir mín og brjálaði sonur hennar eru í heimsókn hjá mér.“ Eins og mér fannst við mæðginin lífga upp á heimili hennar.

MSN log:

17.12.2005 17:07:51 Silja: ´ystir mín er bara í heimsókn
17.12.2005 17:07:59 Óli: skilaðu kveðju
17.12.2005 17:07:59 Silja: með brjálaða son snn
17.12.2005 17:08:05 Óli: Karen greinilega

Tek fram að ég vissi að þetta væri Karen af því að hún á son ólíkt hinum systrunum, ekki af því að Silja hafi almennt verið að tala um hve brjálaður sonurinn væri. Umskiptingasögurnar eru væntanlega tengdar því að Silja var að reyna að læra undir þjóðfræði.

Fullt af fólk hélt örugglega að ég ætlaði að tala um jólasveina.

Lok annar

Jeyhehey. Mér gekk bara vel í Þjóðsagnafræðiprófinu. Ég er samt fúll að ekkert kom um Bettelheim eða Dundes. Það sem er ánægjulegra en gengið í prófinu er að ég fékk 8 fyrir ritgerðina þó ég hafi ekki verið sáttur við hana („it did not reflect my best work“). „Þú hefðir átt að væla meira um hvað hún var léleg“ sagði Sigrún sem fékk nú hærra en ég (og já, ég vældi mikið). Nú er það bara the waiting game. Veit ekki hvort maður á að búast við nokkru fyrren eftir áramót.

Ég skrapp síðan á skrifstofu Stúdentaráðs og hélt vöku fyrir Ella. Hitti síðan Ásgeir á Bóksölunni. Nú er það bara að klára jólaundirbúninginn.

Og já, þetta þýðir víst að ég er búinn með alla kúrsa í BA-náminu og bara lokaverkefnið eftir. Þvílík gleði. Fékk tilkynningu um hvað ég á að lesa fyrir Menningararfinn núna áðan, get farið að hlakka til þess.

Fríkaða eldhúsið

Síðasta (vonandi allavega, vonandi tek ég ekki upp á því að falla núna!) próf BA-náms míns hefst eftir rúman klukkutíma. Ég er að hlusta á Freak Kitchen eins og ég gerði þegar ég fór í mín fyrstu próf. Svíarnir hafa fylgt mér í gegnum þetta.

Þú og ég

Í tilefni breyttra jólaplana…

þú og ég
jólagjöfin mín í ár,
ekki metin er til fjár
ef þú bara vildir hana af mér þiggja
jólagjöfin er ég sjálf,
hvorki að hluta til né hálf
mína framtíð vil ég með þér einum byggja
jólagjöfin er ég…

þegar jólastjarnan skín,
skín hún líka inn til mín
og sú stjarna hefur svarað mínum bænum,
ég vil líka gefa þér,
sálina úr sjálfum mér
og ef viltu mig þá veist’ að ég er hér
jólagjöfin er ég og þú
það er sælla að gefa en þiggja, ef þú vilt mig,
ég og þú,
er ég hugsaði til þín,
ég gat ekki stillt mig,
ég og þú
því að unað og kærleik þú ein getur fyllt mig,
ég og þú,
erum ætluð hvort öðru og því getur ekki neitt spillt
jólagjöfin mín í ár,
ekki metin er til fjár
jólastjarnan hefur svarað mínum bænum
ég vil líka gefa þér,
sálina úr sjálfum mér
og ef viltu mig þá veistu hvar ég er
jólagjöfin er ég og þú
það er sælla að gefa en þiggja,
ef þú vilt mig
ég og þú,
er ég hugsaði til þín,
ég gat ekki stillt mig,
ég og þú,
því að unað og kærleik þú ein getur fyllt mig
ég og þú,
erum ætluð hvort öðru og því getur ekki neitt spillt
og þú
það er sælla að gefa en þiggja,
ef þú vilt mig,
ég og þú
er ég hugsaði til þín,
ég gat ekki stillt mig,
ég og þú,
erum ætluð hvort öðru…