Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 31. júlí 2008 klukkan 13:13

Þingmaður lýgur með tenglum

Bjarni Harðar bloggar um viðtal Sverris Stormsker við Guðna Ágústsson. Hann segir:

[...] af því sem hefur verið bloggað um þáttinn af þeim sem heyrðu er lítill vafi á að Sverrir var hér utan við allt velsæmi.

Þeir sem lesa þetta bara hjá Bjarna hljóta að gera ráð fyrir að á þeim bloggum sem Bjarni vísar þarna í séu menn sem hlustuðu á þáttinn og voru að hneykslast á því sem þeir heyrðu. Það er bara ekki rétt. Annars segist hafa heyrt nokkra þætti Stormskers en segir ekkert sem gefur til kynna að hann hafi heyrt þennan þátt. Hinn sem Bjarni vísar í talar ekkert um að hann hafi heyrt útvarpsþáttinn en segir að Guðni hefði mátt búast við að eitthvað svona myndi gerast. Á bloggunum stendur því eitthvað allt annað en það sem Bjarni sagði og gaf í skyn að stæði þar.

Þetta kallast að ljúga með tenglum. Bjarni hefur gert þetta áður og ætli hann geri þetta ekki barasta aftur. Niðurstaðan er sú að maður skyldi ekki trúa því sem Bjarni Harðar segir án þess að skoða málið fyrst sjálfur.

Miðvikudagur, 30. júlí 2008 klukkan 15:10

Mengun í tjörninni

Er einhver búinn að skoða hvað myndi gerast ef hugmyndin sem Egill Helgason minntist á fyrir nokkrum árum um að opna lækinn til að koma á gegnumflæði í tjörninni yrði reynd? Ég tek fram að ég veit ekkert um þessi mál en mér fannst þetta alltaf skemmtileg hugmynd.

Miðvikudagur, 30. júlí 2008 klukkan 13:11

Cuil = fluga

Eydís vinkona mín, sem ólíkt mér lærði einhverja írsku á Írlandi, segir að cuil þýði fluga en ekki horn eða viska. Þannig að leitarvélin nýja heitir fluga. Það er skondið.

Miðvikudagur, 30. júlí 2008 klukkan 11:42

Moggabloggið

Ég hef ekkert hæðst að Moggabloggurum undanfarið. Ætti ég að gera meira af því?

Miðvikudagur, 30. júlí 2008 klukkan 8:17

Bankaorðrómur

Voðalega hljómar þessi færsla hjá Orðinu á götunni eins og að einhver sé að reyna að koma af stað orðrómi. Markmiðið gæti þá ekki verið annað en reyna að koma bönkunum á kné. Ef þeir sem eiga stórar upphæðir í bönkum fara að taka þær út þá er að sjálfssögðu hætta á þeir hrynji, raunstaða bankanna þarf ekki einu sinni að vera mjög slæm fyrir.

Þriðjudagur, 29. júlí 2008 klukkan 17:12

Kjúl eða ekki

Cuil er ný leitarvél. Mér finnst hún við fyrstu sín ekki spennandi. Hins vegar er á upplýsingasíðunni mynd af steinhring á Írlandi sem ég heimsótti í fyrra. Ég man ekki hvað hann heitir en hann var ekkert langt frá Kenmare (gúgglaði og fann nafnið: Uragh). Það er annars skondið að hér er því haldið fram að cuil þýði ekki viska eins og haldið sé fram í kynningu á leitarvélinni heldur horn.

Þriðjudagur, 29. júlí 2008 klukkan 10:41

Jon Voight um Obama

Það er áhugaverð grein eftir leikarann Jon Voight á vef Washington Times. Hann er aðallega tala um Obama sem hann virðist telja argasta sósíalista þó hann teldist í besta falli hægri krati á íslenskan mælikvarða. Árásir hans á friðarhreyfinguna á sjöunda og áttunda áratugnum er líka áhugaverð. Þessi grein er fín lesning ef maður vill kynna sér viðhorf vitleysinga í Bandaríkjunum.

Þriðjudagur, 29. júlí 2008 klukkan 8:56

Blandast ekki?

Það er skemmtileg tilviljun að á mp3 spilaranum mínum eru bæði lög með Duran Duran og George Michael. Dogs and cats living together…. mass hysteria…

Mánudagur, 28. júlí 2008 klukkan 21:32

Ólympíuleikarnir

Hverjum er ekki sama um annað en pólitíkina?

Mánudagur, 28. júlí 2008 klukkan 13:20

Fæðuöryggi og olía

Ég sá komment við bloggfærslu Egils Helgasonar þar var haldið fram að ef olíukreppan verði alvarlega þá myndi ekki skipta neinu máli hvort við hefðum almennilegt matvælaframboð innanlands því að “[á]n eldsneytis er enginn landbúnaður.” Hér virðist gert ráð fyrir að olían muni bara hverfa einn, tveir og þrír. Líklega yrði fyrst tekin upp skömmtun á olíu og þá yrði matvælaframleiðsla efst yfir þá sem fengu olíu. Það er líka þannig að það er ekki öll matvælaframleiðsla algjörlega háð olíu. En við þurfum að nýta rafmagnið betur og þá kannski fyrst og fremst í samgöngukerfinu.

Fyrir nokkrum árum þá var athugað með lestarkerfi innan Reykjavíkur og komist að þeirri niðurstöðu að það svaraði ekki kostnaði. Mig grunar að þær tölur hafi breyst núna enda olíuverð búið að hækka mikið. Ég held að það sé ekki bara nauðsynlegt að skoða möguleikann á einhvers konar lestarsamgöngum innan höfuðborgarsvæðisins heldur líka til að flytja fólk og vörur milli landshorna. Þetta er augljóslega gríðarstórt verkefni en að sama skapi gæti þetta með tíð og tíma sparað ótrúlega háar fjárhæðir. Við erum ekki að tala um fjárfestingar fyrir nokkur ár heldur áratugi og árhundruði jafnvel. En stjórnmálamenn hugsa í fjórum árum í senn og það kemur endalaust í bakið á okkur.

Rafmagnið okkar gæti gert okkur nær óháð olíu í samgöngum á landi en við erum bara ekkert að gera til bjarga okkur sjálf.

*Viðbót: Ég man að ég sá um daginn á Vefþjóðviljanum skammir til Árna Þórs fyrir að endurvekja hugmyndir um lestarsamgöngur í Rvk. Vefþjóðviljamenn voru náttúrulega ekkert að pæla í því að hækkandi olíuverð hefði breytt dæminu.

Eldri færslur »