Fannst mér það fyndið þegar viðskiptavinur spurði mig í búðinni í dag hvar lagerútsalan væri? Já, en það fannst mér ekki þegar hundruðir fylgdu í kjölfarið. Það er víst ekki nóg að skrifa það heldur þarf að segja það líka, helst tvisvar. Annars er vetrarvinnan komin á hreint. Já, það er nú aldeilis hringhoppandiljómandi. Ég stefni að CV-skrifum strax eftir áramót. Ef heppnin verður með mér neyðist ég þá kannski ekki til að vinna í Garðabænum á næsta ári.
Eitt uppgötvaði ég mér til happs áðan, en það er að ég næ tveimur strætisvögnum í vinnuna, nefnilega tólfunni og númer sextán (segir einhver sextánunni?). Annars sakna ég fjarkans, sem fer nú búllsjittleiðir og er tröllum gefinn, nefnilega Kópavogsbúum. Neiégseginúbarasisvona.