Jólin nálgast – myndir Posted byarny 6. desember, 2009 Súkkulaðið hrært svo það kólni. Því var líka velt um á marmaraplötu. Það var dálítið subbulegt! Allir búnir að skreyta plöturnar sínar. Sæl systkini með plöturnar sínar tilbúnar. Myndum var varpað á nokkur húsanna, þarna eru kakóbaunir. Sölufólk að undirbúa sig fyrir framan bakaríið í Wanne. Bóndinn með fínu Kastelruth svuntuna sína - takið eftir bjórflöskunum ofan á skápunum til vinstri! Beelzebub hinn svarti fylgdarsveinn heilags Nikulásar kíkti á jólamarkaðinn í Honau - hann útdeilir fyrir sveinka og var með súkkulaði í þetta skiptið. Svo var hægt að fá svona líka ljómandi andlitsmálningu, það voru ekki allir jafn sáttir við að þvo sér í framan fyrir háttinn!