Fasching myndir Posted byarny 31. janúar, 2010 Alltaf gaman að kubba! Nýklipptur og fínn - gott að kúlan á enninu sést ekki 🙂 Súla með jólatré reist við ráðhúsið - við vitum ekki hver tilgangur hennar er, en það þurfti miklar tilfæringar til að koma henni upp. Sumir áhorfendanna voru líka skreyttir. Grímurnar eru úr tré og örugglega ekki mikil léttavara! Sumar nornanna voru dálítið Grílulegar. Unglingsstúlka gripin á bakið og færð til - að sjálfsögðu öskrandi! Þetta krútt snýtti sér hressilega og þurrkaði svo þeirri snöggu um andlitið! Mörgum búninganna fylgdu bjöllur, misstórar og hávaðinn eftir því. Maðurinn við hliðina á okkur fær "smá" lit í kinnarnar. Fígúrurnar voru svolítið misárennilegar. Annar unglingur gripinn af úlfi. Þessi káti karl vildi endilega láta taka mynd af sér með krökkunum. Þarna var farið að snjóa alveg svakalega mikið, en þessi trjámenni voru afskaplega flott. Þessi geithafur potaði í bóndann með prikinu sínu. Þessi var greinilega búinn að vera að í mörg ár, teigjurnar á stafnum hans bera þess merki, en teigjur eru teknar um leið og kvenpeningur af öllum stærðum er knúsaður og teigjunum er ekki skilað aftur! Karlkynsóvættir. Smá Tinnabókafílingur í gangi hér - hálfgerðir Pikkarónar. Nokkur dýr voru líka á ferli, þetta voru stórar rottur! Fyrst kom einn og vildi láta taka mynd af sér, svo bættist annar við og loks sá þriðji. Þetta verður að duga sem sýnishorn af þeim tæplega 300 myndum sem teknar voru af þessari skrúðgöngu!