… ekki samt okkar flutningar. 🙂
Bergfest er hugtak sem notað er yfir verkefni eða tímabil sem er hálfnað – dvöl okkar hér í Þýskalandi er senn að verða hálfnuð, alla vega hjá bóndanum. Eitthvað mun styttast í annan endann hjá hinum í fjölskyldunni. Nóg um það nú, meira síðar.
Á mánudaginn varð frúin vör við maurainnrás í íbúðinni, stóð í stórfelldri slátrun fram eftir degi og taldi sig hafa haft sigur!
Skólastúlkurnar fóru á leiksýningu í boði skólans og foreldra í LTT (Landsteater Tübingen) og skemmtu sér konunglega. Bóndinn kom frá Amsterdam eftir miðnættið og svaf því örlítið út á þriðjudeginum.
Seinni partinn á þriðjudeginum var páskakaffi á deild þess skapmikla, foreldrar mættu með veitingar (pönnsur héðan sem hurfu eins og dögg fyrir sólu), mikið var spjallað og deildin skoðuð. Verið er að skreyta hana með páska/vor/sumar skreytingum.
Sú sveimhuga lenti í smávægilegu ævintýri, hún var í leikfimi þegar kaffið byrjaði og átti að koma sér sjálf á leikskólann. Frúin fór fram í gætt öðru hvoru til að athuga með hana. Þegar sást til hennar rúmum klukkutíma eftir að leikfimi lauk var hún búin að reyna að komast inn á leikskólann, það mistókst svo hún fór heim og aftur til baka aftur niður á leikskólann! Óttalegt ævintýri það!
Á miðvikudeginum var heimalærdómur og dól úti í góða veðrinu með Ameríkönunum, fimmtudagurinn leið eins og vanalega og á föstudegi var sundinu sleppt eftir fimleikana.
Þann dag hafði páskahérinn falið litlar pappírskörfur sem leikskólakrakkarnir höfðu gert. Þær fundust svo eftir svolitla leit úti í garðinum og hafði góðgæti verið komið fyrir í þeim, súkkulaði, harðsoðið egg og smákökur voru fyrir hvert einasta barn. Við fengum svo gesti í kvöldmat sem fögnuðu „Bergfest“ með okkur og var það ákaflega notalegt.
Á laugardagsmorgni kom í ljós að ekki hafði tekist að komast fyrir mauraóværuna, hún er búsett undir gólfdúknum og voru íbúarnir þar lokaðir inni með kanildufti og stefnan sett á að kaupa eitur eftir helgina til að losna við þá.
Nú um helgina höfum við svo aðstoðað vini okkar, íslensk/þýsk/amerísku fjölskylduna við flutninga. Þau fluttu yfir í annan bæ hér suður af Tübingen og hefur tíminn farið í þá aðstoð.
Aðfararnótt sunnudags var tímanum breytt yfir á sumartíma, svo klukkutímanum á milli 02-03 var sleppt. Líklegast verður eitthvað snúið að vekja alla í skólann í fyrramálið, en hér er skóli fram á miðvikudag og leikskólinn opinn á skírdag.
Sú snögga missti eina tönn enn á sunnudagskvöldið, þá eru farnar 8 stykki! Sú sveimhuga missti eina um daginn – sína 10. höldum við, sá skapmikli hefur miklar áhyggjur af þessum tönnum sem detta í sífellu úr systrum hans, athugar reglulega hvort sínar tolli ekki örugglega vel!