Nokkrar júnímyndir Posted byarny 20. júní, 2010 Vegna eindreginnar áskorunnar - svona líta bloggbækurnar út, komnar úr prentun hjá blurb.com. Og þetta er dæmi um opnu. Þjóðlegar múffur - matarlitur örugglega yfir leyfilegu hámarki! Búið að segja "Gjörið þið svo vel". Þjóðhátíðargreiðslan var í boði þess skapmikla. Tilbúnar í kvennahlaupið - þurftum að vísu að fara í jakka þar sem það var blautt og kalt! Dómari í kvennahlaupinu. Smjattað á kirsuberjum niðri í bæ. Hliðargluggi hjá Osiander við Holtsmarktplaz við Stiftskirkjuna. Blásara- og trommusveit fyrir framan Ráðhúsið í Horb. Riddarar með gunnfána sína áður en burtreiðarnar hófust. Við vonum að þeir góðu hafi unnið, annars átti eitthvað hræðilegt að koma fyrir börnin á áhorfendabekkjunum. Brúin yfir Neckar skreytt - séð upp að kirkjunni sem trónir yfir bænum.