Myndir frá Prag Posted byarny 10. september, 2010 Merkilegt skilti fyrir framan leikhúsið - engir fílar á grasinu! Fyrir framan eina leikfangabúðina var fræga moldvarpan Krtk. Fyrir framan stjarnfræðiklukkuna á stærsta torgi Evrópu. Það vildu ekki allir vera með á myndinni við turninn á brúarsporði Karlsbrúarinnar. Strengjabrúða sem spilaði á gítar - alveg ótrúlega fær! Flotti gosbrunnurinn sem við sáum! Leikvöllurinn við Karlsbrúnna - litlaturns megin. Gosbrunnur í baksýn - örlítið í átt að gotneskum stíl. Hjón í Prag. Varðmaður fyrir framan höllina. Varðmannaskipti - þeir voru með byssur! Brunnurinn við kastalann/höllina skoðaður. Kirkjan - of stór til að passa á mynd. Tröppurnar 190 niður á jafnsléttu. Stokkið í tröppum. Áð eftir 134 tröppur - eldsteiktir brauðsívalningar borðaðir. Þessi var flottust á Prag fashion week - einhver gamall og góður hönnuður. Færslan sem á við hér er ritstýrð! Við fórum í þennan hestvagn. Algjör lúxus að sitja í þessum plusssætum. Brjóstsykur búinn til. Búin að fá mola. Púðurturninn. Varðmenn turnsins - sá skapmikli vildi alls ekki halda í sverðið. Smámunasemi á þessum pöbb - bannað að koma inn með byssur! Bóndinn fyrir utan gamla vinnustaðinn - kofinn hans var þarna hægra megin. Þessi gosbrunnur var ekki þarna fyrir 15 árum - enda miðbærinn ekki á þessum stað þá! Krúttlingarnir á leið í fjölskyldualbúm í Kína. Rauða kirkjan, sem heitir það einmitt vegna þess að hún er jú rauð á litinn. Séð yfir borgina og dómkirkjuna. Varðmenn við kastalann í Brno - búningarnir ekki alveg eins flottir og í Prag. Seinni heimsstyrjöldin hófst 1938 í Tékklandi, í dýflissum kastlanas í Brno voru nasistar með geymslur. Uppdubbaðar kommúnistablokkir í útjaðri Brno. Kastalinn í Prag í ljósaskiptunum. Playmobil Funpark - garður sem bar nafn með renntu! Svakalegir sjóræningjar. Á bak við foss - þar var blautt! Erfitt líf á riddatatímum. Tignarliðið með bláa blóðið. Dusilmennin. Þarna var líka hægt að leika sér að Playmobil - öllu því sem alla dreymir um að prófa!