Myndir frá Rínardal og Bonn Posted byarny 20. september, 2009 Gistiheimilið Stahleck Castle í Bacharach við ána Rín. Árrisulir íþróttamenn að æfa "bo jutsu" í hallargarðinum. Kletturinn hennar Loreley, hún var ekki við þennan morguninn og heyrðist ekki heldur neitt frá henni. Fjögura vatna sýnin við Boppard, rétt glittir í ána á fjórum stöðum ef vel er að gáð. Á leiðinni niður í stólalyftunni, í næsta stól fyrir neðan situr frúin með þann skapmikla í fanginu og þá sveimhuga við hlið sér, lyftan fer upp um 400 metra eða svo. Deutsches Eck í Koblenz, Mósel áin kemur vinstramegin niður og rennur inn í Rín, skuggi af Vilhjálmi I á stéttinni. Krakkar í handknúnu parísarhjóli á miðaldahátíðinni í Koblenz. Á þessum Imbiss voru myndir af Max og Moritz málaðar, við getum samt ekki fundið neina tengingu við bæinn að öðru leiti. Óknyttastrákurinn Schängel frussar á fólk sem stendur við brunninn hans við gamlan Jesúíta háskóla sem hýsir nú borgarskrifstofur Koblenz. Minnisvarði í Koblenz um þá sem hurfu, voru ofsóttir og myrtir á tímum nasistastjórnarinnar. Nýjar vinkonur í Bonn, sveittir krakkar búin að hamast á leikvelli.