Við höfðum það voða gott í gærkveldi, borðuðum hjá Sillu og Filla. Pabbi kom líka. Maturinn var góður og kvöldið gott. Um 8 leytið kom Guðni með Eirík Boga til okkar því hann og ísta voru á leið upp á sjúkrahús. Svo það var nóg að gera að elta þrjá gríslinga sem allir vildu athygli;) Pétur Snær sofnaði yfir skaupinu og svaf alla flugeldana af sér en við hin fórum út að skjóta. Hrafnkell og Filli sáu um að koma flugeldunum í loftið. Silla var með Helga Fannar að sýna honum flugeldana og ég með Eirík Boga. Pabbi var svo inni að líta eftir Pétri Snæ. Það varð að vera skipulag á þessu. Síðan tæplega hálf eitt varð Eiríkur Bogi stóri bróðir:) Elsku ísta, Guðni og Eiríkur Bogi til hamingju með litla prinsinn:) Prinsinn lét sko aldeilis bíða eftir sér en kom með stæl og varð fyrsta barn ársins. Ég er stolt afasystir í dag:)http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1244598
Â
Við Hrafnkell kíktum aðeins í partí í gærkveldi en stoppuðum mjög stutt, ég held að aldurinn sé farinn að segja til sín enda árinu eldri en í gær;)