Betri tí­ð.

Mér lí­ður mun betur en í­ gær. Reyndar með verki um allann skrokkinn og get voðalí­tið gert en verkjataflan sem ég tók í­ morgun sví­nvirkar;)
Það eru ótrúlega margir búnir að hringja í­ mig og spurja mig hvernig mér lí­ði og ég vil bara þakka fyrir það. Mjög uppörvandi að finna hvað maður á marga góða að. Takk þið eruð best:)
Tryggingamálin lí­ta ekki vel út:( Ég á samt von á hringingu frá lögfræðingi á eftir og þá fer ég yfir með honum hvort eitthvað sé hægt að gera. Verð bara að vera bjartsýn þangað til annað kemur í­ ljós.
ég á svo von á saumaklúbbnum til mí­n í­ kvöld og VÁ ég hlakka svo til að hitta stelpurnar mí­nar:)