Ég setti inn 13 myndir frá brúðkaupinu á facebook síðuna mína. Eru ekki allir með facebook? Fyrir þá sem ekki eru með svona síðu þá er linkurinn á myndirnar: http://www.facebook.com/album.php?aid=4802&l=aafaf&id=563948265
Mánaðarskipt færslusafn fyrir: júlí 2007
Brúðkaupsdagurinn 14.júlí
Dagurinn var tekin snemma og fór ég í Skíðadalinn til að klára að skreyta tjaldið og festa rauðar hjarta blöðrur á öll skilti. Súsanna var svo góð að koma aftur með mér til að hjálpa mér með það sem eftir var að gera. Takk Sússa fyrir að gera tjaldið okkar svona flott:)
Síðan fór ég í blómabúðina til að ná í brúðarvöndin og barmblómin fyrir Hrafnkel og svaramennina. Ég var mjög ánægð með vöndin og var hann alveg eins og ég hafði beðið um. í honum var Birki, Lyng, ber, hvítar rósir og hvítar klukkur.
Þar á eftir var haldið til pabba og ég dreif mig í sturtu og síðan var haldið í sveitina þar sem ég var klædd í flotta kjólinn minn og fékk frábæra förðun hjá Önnu Sóleyju og geggjaða hárgreiðslu hjá Ingunni. Silla systir var síðan svo góð að hjálpa mér í kjólinn og að taka mig til. Takk stelpur fyrir að gera mig svona sæta:)
Athöfnin var yndisleg, veðrið var frábært eins og ég hafði alltaf sagt;) Allt gekk eins og í sögu.
Pabbi leiddi mig að „altarinu“ sem var borð með hvítum dúk og gylltum krossi á. Kyndlar sýndu leiðina þar sem við gengum og flottar spýtur voru sitthvoru megin við „altarið“. Hrafnkell spilaði sjálfur brúðarmarsinn þegar ég gekk inn og tókst það mjög vel hjá honum. Fyrst talaði presturinn aðeins, síðan fluttu Hjalti og Lára Sóley lagið Miðnætti, sem er lag og texti eftir Hrafnkel. Hjalti söng og spilaði á gítar og Lára Sóely lék á fiðlu. Þetta var frábærlega gert hjá þeim:) Síðan talaði presturinn aðeins meira og þar á eftir söng Stebbi og spilaði á gítar lagið Unentended með Muse. Frábærlega vel gert hjá honum. Síðan vorum við gefin saman og þegar við gengum út tóku Hjalti og Lára Sóley lagið I was born to love you með Queen og gerðu það snilldarvel. Takk Hjalti, Lára Sóley og Stebbi fyrir frábæran flutning:)
Eftir athöfnina var rósarblöðum hent yfir okkur og við síðan kisst og knúsuð.
Ljósmyndarinn tók síðan nokkrar myndir af okkur úti í náttúrunni, þar sem veðrið var alveg frábært og hlakka ég til að sjá myndirnar.
Þegar við gengum að veislutjaldinu voru allir gestirnir komnir þangað og búnir að fá sér fordrykk í glas. Okkur var rétt glös og við skáluðum.
Maturinn hófst svo stuttu síðar og var hann alveg einstaklega góður. Við vorum með grillað lambakjöt, salat, kartöflusalat, brúna sósu,rauðkál, mais baunir og kjúklingasalat. ívaxtabolla var síðan drukkinn með matnum og einhverjir höfðu tekið áfengi með sér sem þeir gæddu sér á. Gunni og Magga stóðu sig alveg einstaklega vel með matinn, takk fyrir það:)
Eftirmaturinn var síðan brúðarterta sem var á 7 hæðum og rosalega flott og góð. Einnig buðum við upp á kaffi og konfekt. Takk Anna Lilja og Hallmundur fyrir kökuna:)
Engin ræðuhöld voru í veislunni enda hvorki mín né Hrafnkels fjölskylda sérlega málgefnar. Tengdapabbi flutti þó ljóð sem hann samdi um okkur og var mjög skemmtilegt. Rósa og Davíð stóðu sig rosalega vel sem veislustjórar og leikirnir heppnuðust mjög vel hjá þeim. Takk kærlega fyrir góða veislustjórn Rósa og Davíð:)
Það var síðan slegið upp balli inn í tjaldinu og stóð það fram á nótt. Hrafnkell var með gítara sem gripið var í, Sverrir var með trommu og Hörður með harmonikku. Við Hrafnkell skemmtum okkur konunglega en fórum þó á gistiheimilið rétt fyrir tvö. Fréttum þó af því að stuðið hjá þeim sem ákváðu að gista í tjöldum á staðnum hefði varað langt fram á morgun.
Gistiheimilið sem staðsett er ská á móti Birkimel var mjög skemmtilegt og flott. Þegar við komum þangað voru rósablöð í rúminu og miði sem á stóð „elsku Íris og Hrafnkell, innilega hamingjuóskir á brúðkaupsdaginn, bjarta framtíð, allir ykkar vinir.“ Okkur þótti þetta mjög sætt, takk fyrir þetta allir okkar vinir:)
Að lokum viljum við þakka þeim fyrir sem mættu og glöddust með okkur. Vonum að þið hafið notið dagsins og skemmt ykkur eins vel og við. Einnig viljum við þakka fyrir gjafirnar (tók sko langan tíma að opna þær allar)kveðjurnar, blómin, smsin og skeytin sem við fengum. Takk allir:)
Sérstaklega vil ég þó þakka pabba og tengdapabba fyrir alla hjálpina. Einnig fá Arnór, Guðni og Egill þakkir fyrir að hjálpa okkur að koma upp tjaldinu.
Einnig vil ég þakka saumaklúbbnum mínum fyrir að selja mér barbídúkku í brúðkaupinu og leifa mér með því að hafa yfirhöndina í hjónabandinu. Það getur komið sér vel að vera ráðandi aðilinn;)
ps.. Arnór bróðir Hrafnkels náði sokkabandinu og Anna Egilsdóttir náði brúðarvendinum. Við bíðum bara spennt eftir að okkur verði boðið í tvö brúðkaup;)
8 dagar!
Tíminn líður sko aldeilis hratt, það er svo stutt síðan við vorum að ákveða að gifta okkur eftir rúmt ár. í dag eru svo allt í einu bara 8 dagar í atburðinn.
Ég er búin að hafa það aldeilis gott, vorum í viku í bústað fyrir austan. Ég bauð pabba með og var hann hjá okkur allann tímann. Ég og pabbi skoðuðum okkur um á austurlandið meðan Hrafnkell var að grafa. Þræddum alla austfyrðina og flest söfn sem í boði eru. Verð nú að segja að safnið á Egilsstöðum er mjög skemmtilegt en það er ekki hægt að segja um öll þessi söfn þarna.
Á miðvikudeginum komu tengdó og allir bræður Hrafnkels og voru hjá okkur þessa tvo síðustu daga. Það var voða gott að fá Hrafnkel heim á kvöldin geta borðað saman, farið í göngutúra, bíltúra og kúrt saman fyrir framan sjónvarpið.
Á föstudeginum pökkuðum við saman og héldum til Dalvíkur. Hrafnkell kom svo síðar með fimm Breta með sér, þau eru að vinna með honum og ákváðu að skreppa í smá helgarferð. Við lánuðum þeim tjald og leyfðum þeim að tjalda því við sumarbústaðinn okkar en við Hrafnkell sváfum sjálf í bústaðnum(þeim gamla).
Nánast öll fjölskyldan mín var stödd fyrir norðan því það var verið að vinna í nýja bústaðnum.
Á sunnudeginum fórum við með Bretana á safnið á Dalvík og sýndum þeim Jóhann Svarfdæling og fleira. Síðan fóru þau aftur austur og Hrafnkell minn með þeim.
Síðust viku hef ég svo verið að undirbúa brúðkaupið, kaupa þetta, kaupa hitt, borga þetta, borga hitt, panta þetta og panta hitt;) Annars er allt að verða klárt og þetta hefur hingað til allt gengið frábærlega fyrir sig. Flest allt er að verða tilbúið, einunigis hlutirnir sem verða að vera gerðir á fimmtudaginn og föstudaginn eftir, tja og finna okkur ljósmyndara. Einhver ljósmyndari (áhuga eða atvinnu) að lesa þetta, sem verður á norðurlandi næstu helgi?
Matseðillinn er klár og getið þið nálgast hann inn á brúðkaupssíðunni okkar. (setti inn link þangað hér til hægri.) Einnig erum við búin að fá frábæra veislustjóra, Rósu og Davíð og eiga þau án efa eftir að standa sig rosalega vel:)
Jóna hefur svo reynt að koma mér í form þessa síðustu daga með því að fara með mig í langa göngutúra og í sund, alveg frábært að hafa hana á Dalvík:)
Annars þá er ég að taka út ljótuna í dag og vona að hún verði farin eftir viku. Það er allt að herja á mig núna. Ég er að kljást við hælsæri á hægri fæti, sár á vinstri fæti, frunsu á vörunum, sólbruna sem skilur eftir sig far sem ekki verður fallegt í brúðarkjólnum og alls ekki eins í laginu:/ og til að toppa allt þá er ég að drepast úr túrverkjum. En betra er að taka þetta allt út núna og vera þá búin með þetta eftir 8 daga, ekki satt?
Ég er stödd í Reykjavík eins og er. Ég og pabbi flugum suður á miðvikudagskvöldið og fljúgum aftur norður á sunnudagskvöldið. Það er nú voða ljúft að koma smá heim, þótt mér finnist þessi tímabundna íbúð okkar ekki vera neitt heimili.
í fyrramálið (laugardag) förum við síðan á ættarmót einhverstaðar nálægt Hvolsvelli. Það eru öll systkini pabba, bæði alsystkini og hálf systkini sem ætla að hittast þar með afkomendur sína. Það verður öruglega voða gaman. Síðan verður brunað í bæinn á sunnudaginn og flug norður um kvöldið.
Ég fer svo austur keyrandi á þriðjudaginn og gisti eina nótt hjá Hrafnkeli og tek hann svo með mér norður á miðvikudaginn þegar hann er búinn að vinna. Þá er hann loks kominn í smá brúðkaups frí.
Ég læt nú öruglega ekkert í mér heyra fyrr en eftir brúðkaup en að sjálfsögðu kem ég með nokkrar línur um daginn og kannski myndir (ef við finnum einhvern til að taka myndir).
kveðja Íris