Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Sunnudagur, 30. nóvember 2003 klukkan 2:14

The Hollow Chocolate Bunnies of the Apocalypse

Ég kom við í Pennanum í dag og keypti The Hollow Chocolate Bunnies of the Apocalypse eftir Robert Rankin. Það er enginn með betri titla en Rankin. Hlakka til að lesa hana.

Sunnudagur, 30. nóvember 2003 klukkan 0:40

Laufabrauð byrjar

Ég ákvað að byrja á laufabrauðsundirbúningi í kvöld. Bjó til einfalda uppskrift og byrjaði að fletja út, fyrstu kökurnar eru líklega frekar þykkar en síðan batnaði þetta hjá mér. Endaði í 29 kökum og stefni í að gera annað eins á morgun, það er náttúrulega alltof mikið fyrir okkur tvö en ég hef engar áhyggjur af því, þetta reddast. Þegar ég segi að þetta sé alltof mikið fyrir okkur tvö þá á ég náttúrulega við alltof mikið fyrir mig því Eygló borðar nær ekkert af laufabrauði. Nei, ég ætla ekki að gera tilraun til að borða þetta allt sjálfur heldur á ég eftir að fá eitthvað af gestum í mánuðinum.

Á morgun koma líklega Hildur, Heiða, Eva, Halli, Hjördís og Nils að skera út. Tvíbbarnir koma með eigin kökur en ég veit ekki alveg með upplýsingafræðinördana.

Laugardagur, 29. nóvember 2003 klukkan 18:05

Langyngstur

Ég var á fundi áðan og kom þá í ljós að ég var langyngstur, það kom mér á óvart. Góður fundur og skemmtilegur, var nærri þrír og hálfur klukkutími í allt.

Laugardagur, 29. nóvember 2003 klukkan 12:12

Upplýsingafræðidjamm

Jæja, við Eygló vorum með jólagleði fyrir nema í bókasafns- og upplýsingafræði í gær. Þetta heppnaðist allt afar vel og þegar allir nema Halli, Danni og Hjördís voru farin þá spiluðum við Gettu Betur spilið. Ég vann með miklum yfirburðum en kannski ætti maður að hafa í huga að þau voru öll drukkin.

Annars þá voru ýmis mál rædd í gærkvöldi varðandi skólann og þá fyrst og fremst nafnabreyting. Það voru langflestir á því að rétt væri að fella bókasafns- úr titli skorarinnar sem þýðir að vonandi getur næsti skorarfundur sent þetta áfram til þeirra sem geta samþykkt breytingunga.

Þetta er góð þróun enda er bókasafns- og upplýsingafræði frekar langt nafn og ruglandi. Ég hafði hvort eð er það markmið að kalla mig yfirleitt bara upplýsingafræðing (ég missi að vísu ekki réttinn til að kalla mig bókasafnsfræðing) þegar ég útskrifast, nema að ég fari að vinna á bókasafni en það er frekar ólíklegt.

Þetta ætti líka að geta breytt ímyndinni, ímyndina af konunni sem vinnur í afgreiðslu bóksafnsins. Það eru náttúrulega yfirleitt bókaverðir en ekki bókasafns- og upplýsingafræðingar.

Föstudagur, 28. nóvember 2003 klukkan 17:04

Ég er sko ekkert sjúkur

Einhverjir halda að ég sé sjúkur Queenaðdáandi, það er alveg ósatt einsog þetta dæmi af Queenaðdáendunum sem giftu sig sannar:

“In the courthouse Khashoggi had “Is This The World We Created–Live Aid” outfit,and LeahLurex had the “Rainbow–Second Part” costume.”

Semsagt þá var konan í búning sem Freddie var í á tónleikum cirka 1974 og náunginn í Freddiebúningnum frá Live Aid, síðan eru bæði “nickin” þeirra Queen tengd.

Ekkert sjúkur.

Föstudagur, 28. nóvember 2003 klukkan 14:43

Stórinnkaupaferð

Í kvöld er jólagleði Katalogosar hjá okkur Eygló og í dag fórum við að versla fyrir gleðina. Áfengi var keypt fyrir hellingspening, snakk og ostur fyrir töluvert minni pening. Ég ætti að fá afslátt af félagsgjöldunum fyrir það að drekka ekki. Við keyptum í leiðinni töluvert af jólagjöfum. Bíllinn var alveg stúttfullur og ískápur er það núna.

Enduðum með að fara öll saman á American Style með nýju afsláttarkortin.

Föstudagur, 28. nóvember 2003 klukkan 4:29

Vibradorgítarspil heillaði ekki gagnrýnandann

Ég var að heyra að það hefði verið dómur um tónleikana um helgina, ef einhver veit í hvaða og blaði og hvaða dag það var þá væri gaman að fá að vita af því. Týr fékk víst góða einkunn á meðan Freak Kitchen fékk falleinkunn, ég er sammála helmingnum af þeim dómi. Freak Kitchen var nefnilega drulluskemmtileg á sviði. Freak Kitchen er hins vegar ekki einsog Týr, þetta eru gríðarlega ólíkar hljómsveitir. Hef grun um að Freak Kitchen hafi ekki verið dæmd á eigin forsendum. Síðan er náttúrulega möguleiki að gagnrýnandinn hafi ekki haft húmor fyrir þeim en það er alveg nauðsynlegt.

Ég mæli alveg hiklaust með Freak Kitchen, byrja kannski á nýjustu plötunni sem heitir Move, reyndar er fyrsta platan Appetizer líka frábær, það eru töluverðar líkur á að hinar plöturnar séu líka frábærar en ég hef ekki haft tækifæri til að hlusta á þær almennilega. Kíkið annars á heimasíðu hljómsveitarinnar Freak Kitchen.

Brot úr The Humiliation Song:

I?d be happy to humiliate myself
I?d be happy to bend over just to be somebody
Be somebody
Be somebody
I?d do anything for ten seconds of fame
I?d be happy to bend over just to be somebody
Be somebody
Be somebody

Þetta lag er ádeila á raunveruleikasjónvarp, það var ekki fyrren á þriðju tónleikunum sem ég fattaði hve flott þetta lag er og í leiðinni skyldi ég að það er alveg stórkostlega viðeigandi að hann spilaði á gítar með víbrador í þessu lagi. Ójá.

Föstudagur, 28. nóvember 2003 klukkan 1:49

Punkteraði

Um sexleytið í dag ætluðum við að fara í Kringluna með Evu, Heiðu og Hildi en við komust ekki langt, þegar við vorum að beygja í inn í götuna hjá Evu og Hildi þá varð bíllinn allt í einu skrýtinn. Hoppuðum út og sáum að það var punkterað. Ég skellti varadekkinu á og við ákváðum að fara ekki í Kringluna enda er fátt leiðinlegra en að keyra á mismunandi dekkjum (varadekkið er nefnilega sumardekk). Heppileg tímasetning miðað við allt, við hefðum getað lent í þessu á leiðinni til Selfoss.

Fimmtudagur, 27. nóvember 2003 klukkan 14:29

Ótrúlegur árangur

Ég náði ótrúlegum árangri í aðferðafræðiprófinu á laugardag, fékk 5.8. Það er úrvalsárangur miðað við að ég var í prófinu í svona 45-50 mínútur, hafði nær ekkert lært og hafði verið á tónleikum til klukkan 4 nóttina áður. Fjör. Hefði samt engu skipt þó ég hefði fengið 1 í þessu prófi, dettur samt dautt niður. Í aðalaðferðafræðiprófinu er stefnan hins vegar á 7-9.

Ég er hins vegar með pælingar í gangi og þarf hugsanlega að hringja til Færeyja á eftir, sem er fjör.

Fimmtudagur, 27. nóvember 2003 klukkan 11:51

By Jingo

Ég er að lesa Jingo eftir Terry Pratchett, ég var búinn að gleyma hve góð hún er. Hún fjallar um stríð sem er háð stríðsins vegna.

Eldri færslur »