Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Miðvikudagur, 30. júní 2004 klukkan 20:14

Undarleg forgangsröðun hjá prestinum

Fréttablaðið spyr í dag prestinn í Grafarvogi hvers hún myndi óska ef hún ætti eina ósk og hún biður um að margir mætti á einhverja Grafarvogshátíð. Mér þykir þetta undarleg forgangsröðun, hún hefði getað beðið um frið á jörð, mat handa hungruðum, lækningu handa sjúkum en nei, hún vill að fólk mæti í einhverja grillveislu.

Miðvikudagur, 30. júní 2004 klukkan 14:56

Hver skerðir opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar?

Mér þykir fréttin um breyttan lokunartíma Þjóðarbókhlöðu á heimasíðu Stúdentaráðs illa orðuð. Þar stendur: *Nú er svo komið að forsvarsmenn Landsbókasafnsins sjá sig knúna að skerða opnunartímann verulega.* Í fréttinni er ekkert minnst á ástæðuna fyrir því að skerða á opnunartímann. Í raun og veru er það Háskólinn sem ber ábyrgð á þessum breytingum vegna þess að hann er að hætta að borga fyrir þennan aukalega opnunartíma. Hvers vegna er Háskólinn að hætta að borga? Mér skylst að það sé vegna þess að Stúdentaráð hefur verið að þrýsta á að hafa aðrar lesastöður opnar lengur. Hver er sökudólgurinn?

Miðvikudagur, 30. júní 2004 klukkan 3:33

Hvað ef, réttur samanburður, skrýtnar ályktanir og fífldirfska

Hvað ef Ólafur Ragnar hefði skrifað undir fjölmiðlalögin? Ég hefði ekki haft fyrir því að mæta á kjörstað og ég veit um ótal marga sem hefðu líka hunsað kosningarnar. Einhverjir sem skiluðu auðu hefðu kannski kosið hann en áttum okkur á því að það er ótrúlega stór hópur sem hefði aldrei kosið kallinn þannig að það að túlka öll auðu atkvæðin sem viðbrögð við því að Ólafur neitaði að skrifa undir er bara út í hött. Margir hafa hræsnað gríðarlega síðastliðinn mánuð og kallað upp fyrir sig að Ólafur sé ekki lengur sameiningartákn þjóðarinnar þó að þeir hafi í raun aldrei litið á hann sem neitt sameiningartákn.

Eitt það heimskulegasta sem hefur komið fram í umræðunni síðustu daga er að bera kosningaþátttöku saman við síðustu Alþingiskosningar sem voru ákaflega spennandi með mikilli kjörsókn. Hið eina rétt er að bera kosningaþátttöku saman við það þegar Vigdís fékk mótframboð 1988, þátttakan þá var frekar lítil enda var þar líka um að ræða kosningar þar sem allir vissu fyrirfram hvernig færu.

Mér þykir undarlegt að fólk skuli taka útkomuna (93% þátttaka) úr könnun Fréttablaðsins um kosningaþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni án nokkurra fyrirvara, það fyrsta sem ég leit á þegar ég sá fréttina var hve stór hópur neitaði að svara og það var um 40%. Ég hefði haldið að þessi 40% sem neitað svara væru einmitt ólíklegri til þess að kjósa heldur en þeir sem svöruðu. Þessi 40% eru væntanlega ekki með miklar skoðanir á málinu á meðan restin er líklega þeir sem hafa sterkar skoðanir.

Ég fatta annars ekki hvað Sjálfstæðisflokknum gengur til með því að ætla að hafa láta þessi 44% takmörk gilda í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þeir geta eiginlega ekki annað en tapað á þessu. Þeir fá kjósendur upp á móti sér með þessu,hvetja andstæðinga laganna til þess að mæta en að sama skapi hvetur þetta stuðningsmennina til þess að sitja heima. Í raun væri versta útkoman fyrir Sjálfstæðisflokkinn í þjóðaratkvæðagreiðslunni ekki ef 44% þjóðarinnar myndu greiða atkvæði gegn frumvarpinu heldur ef 43.99% myndu greiða atkvæði gegn því, það myndi hleypa illu blóði í fólk. Þessi 44% mörk eru fífldirfska af hálfu Sjálfstæðisflokksins með áherslu á orðinu **fífl**.

Þriðjudagur, 29. júní 2004 klukkan 19:04

Málgagn hómófóbískra kristilegra íhaldsmanna

Ég er ekki að skilja þessa umræðu um að Mogginn sé að breytast í málgagn hægrimanna af þeirri einföldu ástæðu að Mogginn hefur aldrei hætt að vera málgagn hægri manna (hómófóbískra kristilegra íhaldsmanna yfirleitt).

Mánudagur, 28. júní 2004 klukkan 19:15

Hvað er að Geir?

Hvernig í ósköpunum getur Geir H. Haarde haldið því blákalt fram að enginn hafi haldið að málskotsréttur forseta Íslands væri fullgildur þegar ótal manns hafa í gegnum tíðina hvatt forseta Íslands til þess að nota þennan rétt? Hvað er að manninum? Ég bara spyr.

Sunnudagur, 27. júní 2004 klukkan 21:48

Stilltur gítar og húsgögn

Aðalsteinn frændi renndi hérna við og stillti gítarinn minn, hrósaði honum meiraðsegja töluvert, núna vantar bara að stilla gítarleikarann og þá verður allt gott.

Annars þá erum við búin að fá allt að norðan, búið að afhenda Stekkjargerðið. Hérna eru húsgögn útum allt.

Sunnudagur, 27. júní 2004 klukkan 16:32

Og ég lét verða af því

Í nótt kom ég heim af tónleikum og fór að spjalla við Bigga, minntist á hve frábær Gunnar hefði verið á bassanum og að mig hefði alltaf langað til að spila á bassa (og í raun líka á trommur), ég talaði líka um að á unglingsárum hefði mig langað að læra á píanó. Ég sagði líka að væntanlega væri einfaldast að kaupa sér ódýran gítar og prufa sig áfram þannig. Biggi hvatti mig áfram, sagði að rétta leiðin væri bara að prufa sig áfram og áðan fór ég og keypti ákaflega ódýran (og væntanlega lélegan) gítar í Hagkaup.

Nú er um að gera að fá Aðalstein frænda í heimsókn (eða fara í heimsókn til hans) til að láta stilla gítarinn (ég held að hann sé ekki stilltur en hvernig á ég að vita svonalagað). Ég er ákaflega ánægður, oft hef ég verið að spá í að gera eitthvað svona en loksins lét ég verða af því og ætla að læra á gítar á gamalsaldri.

Sunnudagur, 27. júní 2004 klukkan 4:35

og þeir rokkuðu aftur

Týr rokkuðu líka í kvöld, ég var ánægður, myndi helst vilja elta þá um landið en ég læt það vera. Vona að þeir komi fljótt aftur. Ég á væntanlega eftir að láta inn fleiri myndir en hér eru tvær til að byrja með:

Færeyjingarnir fræknu
Þessi mynd er í raun ekki myndin sem átti að taka heldur er verið að setja fólk í stellingar og mér fannst hún bara svo skemmtileg að ég varð að setja hana inn. Þetta eru semsagt Kári, Eivör og Heri. Ég sýndi Eivöru þessar myndirnar sem ég tók af þeim, hún var mishrifinn.

Óli með Tý
Fanboy myndin, raunar voru þeir búnir að stilla sér upp fyrir myndatökur með öðrum þannig að ég ákvað að stökkva á þá líka og fá mynd af mér með þeim öllum. Þeir voru alveg búnir á því, spiluðu í tæpa tvo tíma án þess að taka sér hlé. Ef ég man rétt þá er röðin frá vinstri: Heri, Óli, Ottó, Gunnar (sem var sérstaklega frábær í kvöld) og Kári.

Þrátt fyrir að Ottó sé að létta á honum Heri (og Ottó er góður, það er enginn vafi) þá sér maður Heri samt taka þessi ótrúlegu sóló á meðan hann syngur um leið, það er ekki á færi hvers manns.

Núna er það sturta og svefn.

Laugardagur, 26. júní 2004 klukkan 21:56

Kosningar

Við kusum í fyrsta sinn sem Reykvíkingar í dag, þurftum þar af leiðandi að finna staðsetningu Hagaskóla. Þetta gekk vel fyrir utan hve hvasst var. Í kjörklefanum þá íhugaði ég augnablik að stoppa í smá tíma og þykjast hugsa en hætti við það og krossaði bara við Ólaf einsog ég hefði gert hvorteðer.

Það var annars skrýtið að í morgun þegar við vorum að tala um hvað við þyrftum að gera í dag þá mundum við ekki strax eftir því að það væru kosningar, það er enginn kosningafílingur enda engin raunveruleg spenna um úrslitin. Kannski hefði verið gáfulegra af Ólafi að taka aðeins þátt í kosningabaráttunni til að hvetja fólk til að kjósa. Núna er staðan óheppileg að því leyti að fjölmargir hafa ekki nennt á kjörstað án þess þó að hafa ætlast til þess að sú athöfn yrði túlkuð sem andstaða við Ólaf þó þetta verði væntanlega gert. Það að mæta á kjörstað og skila auðu er raunveruleg afstaða ólíkt því að mæta ekki.

En hvað um það, nú munu andstæðingar Ólafs túlka úrslitin sem ósigur fyrir hann á meðan stuðningsmenn hans munu segja að hann hafi sigrað. Ólafur getur allavega verið ánægður með eitt, hann var ekki kosinn sem puntdúkka.

Var ég ekki örugglega fyrstur að benda á að allar forsetaframbjóðendafrúrnar væru af erlendu bergi brotnar? Ég held það.

Ég sá afa í sjónvarpinu áðan, hann var að kjósa á Akureyri, ég efast ekki að hann hafi kosið rétt. Gaman að sjá kallinn.

Laugardagur, 26. júní 2004 klukkan 3:55

Týr rokkar

Brilljant alveg. Við fórum út á Akranes og drógum síðan Bigga með okkur á tónleika með Tý og það var frábært. Þeir virðast hafa miklu meiri orku eftir að þeir fengu Ottó í lið með sér. Biggi virtist meiraðsegja falla fyrir þeim og það er nú mikið sagt. Grand Rokk í kvöld, Týr, be there or be rectangular.

Eldri færslur »