Hvernig væri ef Kastljósið myndi taka upp á því að fara yfir viðtölin úr þættinum, athuga hvort að viðmælendurnir séu örugglega að segja satt og birta síðan daginn eftir ábendingar um slíkt? Væri það ekki fyrirtak? Þetta mættu svosem allir fréttamenn gera.
Month: nóvember 2008
Ríflega 60 í uppskrift
Ég held að það hafi verið rúmlega 60 kökur úr einfaldri uppskrift í dag. Ég á þó eftir að telja alveg. Ég er frekar búinn á því. Byrjaði um níu og var að setjast niður núna. Uppvaskið cirka hálfnað og hreingerningin líka. Stöðugur straumur inn og út í dag. Mjög gaman.
Múrbrot
Í kvöld skrapp ég á útgáfufögnuð. Það var ekki mín eigin bók, Andlegt sjálfstæði sem fæst í öllum helstu bókaverslunum, heldur bókin Múrbrot sem inniheldur greinar af Múrnum. Almenn gremja var þó ríkjandi þar sem ekki einn einasta fánapistil er að finna í bókinni, ekkert er minnst á fræga Svía og ég sé ekki eina einustu vísun í leikferil Keanu Reeves. Eiginlega er þetta bara einhver pólitík.
Boðið var upp á nokkur skemmtiatriði. Meðal annars keppni í látbragðsleik sem mitt lið tapaði á aumlegan hátt. Sem bestur fer náði ég einu stigi með því að þekkja Hvíta stríðið og bjargaði okkur frá ævivarandi skömm.
Annars var góðmennt þarna og jafnvel fjölmennt. Ég stakk þó af áður en Auður gat dregið mig á karíókí bar. Laufabrauðið hefur forgang.
Hvað ætlum við að fá?
Af forvitni ætla ég að spyrja hvað við ætlum eiginlega að fara fram á ef við sækjum um aðild að Evrópusambandinu? Hvað væri ásættanleg niðurstaða úr aðildarviðræðum?
Gríðarlega vitlaust hjá RÚV
Ég held að það sé eitthvað meira en lítið að forgangsröðuninni hjá RÚV ef Svæðisútvarpið er fyrst á höggstokkinn.
Ef það á að taka RÚV af auglýsingamarkaði ætti að mæta því fyrst með því að kaupa færri eða enga dýra erlenda dagskrárliði. Það myndi um leið hjálpa hinum stöðvunum aukalega því þá minnkar samkeppnin í innkaupum. RÚV ætti að leggja áherslu á innlenda dagskrárgerð og þá meðal annars úti á landi.
Ég held líka að það hefði mátt minnka launin hans Páls um töluvert meira en 10% eða bara sparka honum alveg.
Hættulegar rennibrautir
Ég bara verð að vísa á skýringarmyndir Palla á rennibraut Þorvalds Gylfasonar.
Sigur ljósmyndara
Það er hreint út sagt stórkostlegt að Séð og Heyrt hafi verið dæmt fyrir að nota mynd án leyfis. Þetta þýðir vonandi að fjölmiðlar muni passi upp á þessi mál í framtíðinni.
Sr. Þórhallur og Karl biskup berjast
Það er áhugavert að fylgjast með því hvernig menn eins og sr. Þórhallur Heimisson annars vegar og Karl Sigurbjörnsson biskup eru að berjast um hlutverk kirkjunnar í kreppunni. Að sjálfssögðu fara þeir ekki að tala beint um hver annan en dylgja þess frekar. Þórhallur mætir á mótmæli og vill að kirkjan standi þar fremst. Á móti virðist hann bendla afstöðu Karls biskups og fleiri við ópíumlíkingu Marx þar sem trúin er deyfilyf.
Þetta sér maður ef maður les á milli línanna.
Steikingafeitisbömmer
Ég ætlaði að kaupa steikingarfeiti í dag fyrir laufabrauðsgerðina á sunnudag. Kemur þá í ljós að ekkert var til frá Kristjánsbakarí. Ég veit ekki alveg hvað ég ætti að nota í staðinn. Er einhver með ráð?
Ergelsi vegna símsölu
Áðan var hringt í mig og reynt að selja mér einhvern fjandann. Ég varð mjög pirraður enda bannmerktur í bak og fyrir. Ég kvartaði og bað um að það yrði komið í veg fyrir að þetta gerðist aftur. Ég fékk hlátur sem svar. Ég athugaði í Símaskrá hvort það væri ekki allt í lagi og síðan í Þjóðskrá. Allt rétt. Þá hringdi ég í yfirmann þess sem hafði hringt og kvartaði. Fyrst þurfti ég reyndar að sitja undir sjö mínútum af leiðinlegri símatónlist. Urg. En allavega vona ég að þetta hafi einhver áhrif.
Laufabrauðsgerð á sunnudag
Á sunnudaginn næstkomandi verður laufabrauðsgerð hjá okkur Eygló eins og svo mörg árin áður. Ég vona að sjá sem flesta þarna og því væri gaman ef vinir mínir og kunningjar sem ekki hafa þegar látið vita af komu sinni en vilja vera með myndu láta mig vita.
Ég held að ég setji þá reglu að allt krepputal sé bannað. Held að allir þurfi á því að halda.
Góð hugmynd fyrir svefninn truflar svefninn
Í gærkvöldi fékk ég góða hugmynd, að eigin mati allavega, fyrir svefninn. Vandamálið er að pælingar út frá henni héldu fyrir mér vöku alltof lengi. Nú er ég þreyttur.
Íbúðalánasjóður
Það er svolítið undarlegt að greiðsluseðillinn frá Íbúðalánasjóði er ekki kominn í einkabankann minn. Þetta er mjög óþægilegt þar sem hér er um stærsta útgjaldalið hvers mánaðar og við vitum ekki hvaða næsta greiðsla er stór. Hvað er á seyði?
Útúrsnúningar og lygar frá lögreglustjóra
Áhugavert að fylgjast með Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra í Kastljósinu áðan. Hann hélt því fram að viðvörun hafi verið gefin áður en piparúða var beitt. Það hefur þá meðal annars farið framhjá hljóðnema RÚV sem var þarna. Þegar hann var spurður hvers vegna ekki hafi verið notað gjallarhorn við að koma þessarri meintu viðvörun til skila sneri hann útúr. Þegar bent var á lygar hans á laugardagskvöldið um að Haukur hefði verið margboðaður hélt hann því fram að það hefði ekki verið nein lygi en segir síðan að lögreglan hefði ekki getað vitað að ekki hafi verið búið að senda honum tilkynningu. Það þýðir að hann var ekki búinn að kynna sér málið þegar yfirlýsingar hans komu og var því að ljúga.
Ég sé ekki hvernig manninum er stætt á að sitja áfram.
Hvers vegna kosningar?
Eðlileg viðbrögð við kreppunni hefði verið að innlima stjórnarandstöðuna í aðgerðirnar. Hugsanlega hefði þetta átt að vera þjóðstjórn en ekkert endilega. Það hefði minnkað alla tortryggni. Það hafa verið teknar of stórar ákvarðanir í litlum hópi sem nýtur ekki trausts landsmanna. Það að stjórnarandstaðan hafi verið algjörlega hunsuð og Alþingi sniðgengið er óásættanlegt. Ríkisstjórnin hefur stimplað sjálfa sig út og þess vegna þurfum við kosningar. Það er ekki óskaniðurstaða en hún er nauðsynleg.
Núna talar Ingibjörg um að stjórn og stjórnarandstaða eigi að snúa bökum saman. Þvílíkt hræsni. Hún meinar að stjórnarandstaðan eigi að styðja ríkisstjórnina í blindni.
Skammir Samfylkingar
Það er spes að sjá Samfylkinguna skammast í Framsókn um ábyrgð hennar á bankakreppunni á meðan Samfylkingin sjálf hunsar eigin ábyrgð og er í ríkisstjórn með aðalsökudólgunum.
VG hallar sér að Sjálfstæðisflokknum
Eruð þið að grínast með þessa kenningu? Er þetta líklegt á meðan UVG liðar eru að prenta og dreifa barmmerkjum með slagorðinu Burt með ránfuglinn? Ránfuglinn er, fyrir þá sem ekki þekkja, fálki Sjálfstæðismanna.
Þar sem þessi kenning er almennt góluð af stuðningsmönnum Samfylkingarinnar er þetta augljóslega dæmi um frávarp. Að sjá og gagnrýna eigin galla hjá öðrum. Þið eruð í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Í dag er hægt að stoppa það.
Meira lagahringl um handtöku
Ég sé að einhverjir eru að reyna að hringla meira með lögmæti handtöku Hauks og segja að þessi setning í 10. grein laga um fullnustu refsinga heimili handtökuna:
Heimilt er að láta dómþola hefja afplánun án boðunar eða áður en afplánun á að hefjast samkvæmt boðun fremji hann refsiverðan verknað á ný, hætta er talin á að hann reyni að koma sér undan refsingu eða almannahagsmunir mæla með því.
Í fyrsta lagi er þetta úr kafla 2 sem heitir „Fullnusta óskilorðsbundinna fangelsisrefsinga o.fl.“. Haukur var ekki dæmdur til óskilorðsbundinnar refsingar heldur ætlaði hann að taka út sektardóm með fangelsisvist sem heitir vararefsing eins og við sem höfum verið að fylgjast með lagahliðinni höfum öll lært. En segjum sem svo að þetta myndi gilda um Hauk. Þá er vandamálið að þetta er eftir á skýring. Ef talin var hætta á að Haukur væri að fara að brjóta af sér hefði það verið í öllum gögnunum og lögreglan hefði líka ekki beðið í tíu daga heldur pikkað hann upp strax. Þessi skýring er því fallin.
Skv. 71. grein laga um fullnustu refsingar átti að senda Hauk tilkynningu, það var ekki gert og því handtakan ólöleg. Það að ekki var send út tilkynning bendir til þess sem ég hef haldið fram að það hafi verið eitthvað skrýtið við þá ákvörðun að láta hann fara að sitja af sér núna. Á laugardegi flaggar hann, á þriðjudegi er þetta ákveðið. Þetta væri ákaflega stór tilviljun.
Skæðir prestar herja á lítil leikskólabörn
Svona mislas ég fyrirsögn í Mogganum áðan. Mér fannst þetta líka merkileg framför í fréttamennskunni hjá þeim.
Af hverju er Innheimtumiðstöð sekta í spunamennsku?
Í tilkynningu frá Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar segir (skv. mbl):
Þess má þó geta að þriggja vikna boðunarfrestur á við um afplánun óskilorðsbundinna dóma en ekki afplánun vararefsingar, sbr. 10. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 49/2005
Þessi lína er bara til að reyna að ringla fólk í stað þess að upplýsa. Sannleikurinn er sá að skv. 71. grein sömu laga á að senda tilkynningu vegna vararefsingar. Það þarf að spyrja þá hvers vegna þeir eru í spunamennskunni. Hreint út.
Það er líka ein spurning sem þarf að spyrja aftur og aftur og hún er hvernig það kemur til að þremur dögum eftir að hann flaggar Bónusfánanum er ákveðið að Haukur Hilmarsson eigi að fara í fangelsi. Þann 8. nóvember flaggar hann, þann 11. nóvember er þetta sett inn í kerfið. Þetta getur ekki verið tilviljun. Það hefur einhver togað í spotta og nú þarf að finna þann mann. Allar líkur er að svarið finnist meðal annars hjá Innheimtumiðstöð sekta og sakarkostnaðar þar sem þetta er gert.
Haukur á að fara í mál vegna ólöglegrar handtöku. Það kemur ekki annað til greina.
Víst ólögleg handtaka
Ég var of fljótur á mér. Ég fletti upp í lögum um fullnustu refsingar og sé þessa klausu:
Nú telur lögreglustjóri að innheimtuaðgerðir séu þýðingarlausar eða fullreyndar og skal hann þá ákveða að vararefsingu verði beitt. Að höfðu samráði við fangelsismálastofnun skal sektarþola send tilkynning um fyrirhugaða afplánun vararefsingar. Tilkynningu skal senda með sannanlegum hætti.
Það er því rétt að þriggja vikna fyrirvarinn gildir ekki en það á samt að senda út tilkynningu. Það er því ljóst að handtakan brýtur í bága við lög þar sem engin slík tilkynning var send.
Stór tilviljun
Jæja, handtakan var ekki beinlínis ólögleg. En hún styrkir í raun þá kenningu að handtakan sé hefnd fyrir fánamálið. Þann 8. nóvember flaggar Haukur á Alþingishúsinu og þann 11. nóvember var lýst eftir honum. Er þetta ekki svoltið fokking stór tilviljun? Það getur ekki annað verið en að einhver hafi togað í spotta þarna.
Uppfært 18:33
Ég hef víst rangt fyrir mér. Handtakan var ólögleg bara ekki skv. þeirri lagagrein sem áður hafði verið vísað í.
Góðar hugmyndir
Mér finnst allt mora í góðum hugmyndum um hvað skuli næst gera í efnahagsmálum. Engar þeirra koma frá ríkisstjórninni. Engar þeirra eru teknar upp af ríkisstjórninni. Ég tel því ljóst að það skorti ekki góðar hugmyndir heldur góða ríkisstjórn.
Breyting á Viðskiptablaðinu?
Einhver var að tala um að líklegt væri að Viðskiptablaðinu yrði breytt þannig að það yrði cirkabát eins og prentuð útgáfa af Vefþjóðviljanum. Ég veit bara ekki alveg í hverju breytingin væri þá fólgin.
Ófriðsamleg mótmæli en þó án ofbeldis
Ég hef oft tekið þátt í friðsamlegum mótmælum. Þau hafa almennt snúist um að standa með skilti, hlusta á ræður og kannski kalla slagorð. Þessi mótmæli hafa aldrei skilað árangri. Það eina sem kom út úr þeim var að maður fékk ákveðna útrás og gat talið sér trú um að maður hafi allavega reynt.
Þegar eggjum er kastað á Alþingi er það ekki beinlínis friðsamlegar aðgerðir. En þetta er ekki ofbeldi og þar er varla um eignarspjöll að ræða þar sem góð rigning gæti skolað þessu burt. Síðan eru rúður brotnar. Það eru eignarspjöll og skemmdarverk. En það er ekki ofbeldi. Ofbeldi er beitt á fólk en ekki hús.
Það sama á við um mótmælin við lögreglustöðina í gær. Þar voru eignir skemmdar en mótmælendur beittu engan ofbeldi, þeir meiddu engan. Lögreglan hins vegar réðst á fólk með ofbeldi. Ekki var gefin nein viðvörun heldur ráðist á fólk, bæði þá sem voru að ráðast inn í húsið og aðra sem ekki höfðu farið yfir nein strik. Það hefði verið hægt að beita öðrum aðferðum.
Ég vil í lokin benda á yfirlýsingu frá félagi fanga. Fangelsin eru yfirfull. Hættulegir menn bíða afplánunar. Ekki séns að það hafi bara verið komið að því að Haukur ætti að afplána sinn dóm. Ég krefst rannsóknar.
