Monthly Archives: júní 2009
Leikfimi og grasagarður
Gærdagurinn leið og var allt í einu liðinn, það sem stóð upp úr var að sá skapmikli fékk að prófa einn tíma í krakkaleikfimi – hann er of ungur til að taka þátt! Leikfimin er fyrir 3-5 ára krakka, hann hefði alveg getað allt sem átti að gera, en vildi það ekki. Setning gærdagsins var …
Myndir af engisprettum
Kastalar og engisprettur
Við fjölskyldan höfðum það frekar náðugt framan af degi í dag, stelpur lærðu að hoppa inn í snúsnú í staðin fyrir að byrja við bandið, dúllast úti á palli og inni fram að mat. Eftir hádegið fórum við í bíltúr, fyrst var ekið upp að Hohentringen kastala sem er í jaðri skóglendis fyrir norðan borgina. …
Rigningarmyndir
Ausandi rigning og fiðrildagerð
Dagurinn hófst með ausandi rigningu og þrumuveðri. Eftir að allir voru komnir á fætur hringdi kennari þeirrar sveimhuga og afboðaði fyrirhugaða sumarhátíð í skóginum norðan við Bebenhausen. Dagurinn varð því skyndilega autt blað. Krakkarnir fengu að fara út á svalir og prófa að vera léttklædd í hellidembu – það var gaman að sulla í pollunum …
Sumarhátíð – myndir
Fimleikar og sumarhátíð
Í morgunsárið voru keyptar tátiljur á þá sveimhuga og hlaupa/fótboltaskór á þann skapmikla – auk helgarinnkaupanna. Þann stutta tíma sem frúin og sá skapmikli höfðu heima fyrripartinn var hann klipptur og skartar nú skotti. Eftir að stelpur voru sóttar var grauturinn etinn í snarhasti, því sú snögga átti að vera mætt á fimleikaæfingu klukkan tvö …
Smáfuglar og peysa
Þrif og smáfuglar
Föstudagsþrifum var flýtt um einn dag, þar sem morgundagurinn (og föstudagar héðan í frá almennt) verður mjög annasamur. Þegar frúin og sá skapmikli komu heim frá skutlinu var verið að malbika í brot í bílastæðinu hér fyrir utan, svo við stóðum í um hálfa klukkustund á svölunum og fylgdumst með körlunum. Svo var skellt í …