Parísarmyndir Posted byarny 11. apríl, 2010 Hárgreiðsla að morgni - takið eftir makka frúarinnar. Lagt af stað til Parísar með hraðlestinni - sem stóð ekki alveg undir nafni - sko lestin. 🙂 Alltaf gaman í lest, þó maður þurfi að vera í henni í MARGA klukkutíma. Notre Dame er tignarleg - eða kirkjan hans Quasimodos eins og krakkarnir kölluðu hana. Gosbrunnur heilags Mikjáls á vinstri bakkanum. Parísardaman fylgdi okkur á vinstri bakkanum, við stoppuðum í Skítafýlustræti og fengum okkur ljúffengar "kreppur" með osti og meððí. Eftir göngutúrinn mikla fórum við í dýragarðinn sem var að sjálfsögðu einn af hápunktum Parísar - að mati meiri hluta fjölskyldunnar. Stravinski gosbrunnurinn við Pompidu safnið er stór skemmtilegur, margt að sjá í honum. Hér eru krakkarnir við fuglinn. Horft úr Effelturninum yfir Palais de Challot og hægri bakkann. Horft beint niður - langt er það! Útsýnisins notið af mis miklum ákafa - sá skapmikli sofnaði í röðinni að efri lyftunni. Þetta 120 ára mannvirki hrundi ekki á meðan við voru þar uppi - sumir höfðu samt örlitlar áhyggjur af því að það gæti gerst. Louvre safnið sem við fórum ekki á. Bátum var fleytt á tjörn í Tuileries görðunum við Louvre safnið. Þar var líka hægt að leika sér á trampolínum. Stökkva á alla kanta. Og leika sér að vild. Áfram var gengið upp Champs Elysees alla leið að Sigurboganum. Þaðan var fallegt útsýni yfir borgina, þarna sést Stóribogi sem er í viðskiptahverfinu. Glitrandi Effelturn á slaginu 9. Krakkarnir heilluð af ljósadýrðinni. Íbúðin okkar var í Beubourg hverfinu, Jaques Chirac lét koma þessu listaverki fyrir þann 8. október 1978, fyrir ofan innganginn. Gluggar íbúðarinnar eru í horninu, sá neðsti í sól vinstra megin og sá næsti við hornið hægra megin. 90° til vinstri frá því að taka gluggamyndina sést í Pompidu safnið. Rósettu glugginn í Saint Chapelle á eyjunnni. Rósettu glugginn í Notre Dame. Æðislegt kaffihús á litlu eyjunni - meira að segja þökulagt fyrir utan! Leikvöllur á bak við Notre Dame - frúin á minningarreit vegna Helfararinnar hinum megin við götuna. Bastillu minnismerkið. ERRÓ - fánar á bakhlið Pompidu. Pompidu safnið að framanverðu - við fórum efst upp til hægri fyrsta kvöldið og horfðum á borgina í ljósaskiptunum. Makkinn farinn! Fyrir utan gróðurhúsin í Grasagarðinum er þetta Magnólíutré við það að springa út. Kirsuberjatré í fullum blóma.