Gestamyndir Posted byarny 28. júní, 2010 Að vísu ekki gestur hjá okkur, en þennan sjáum við oft á leiðinni í leikskólann á morgnanna. Á nýlagaðri berfótaþraut í skóginum fyrir ofan bóndabæinn - gestirnir mættir. Neuschwanstein kastali. Útsýnið við kastalann - hinn kastalinn hans Lúlla klikk var þarna fyrir neðan - sá skapmikli vildi ekki vera með. Hópmynd í Ölpunum fyrir ofan Arnarhreiðrið. Salzburg - Söngvaseiðs aðdáendur þekkja kastalann! Húsalengja sem byggð er inn í bergvegginn. Staðið fyrir utan fæðingarstað Mozarts. Smá Söngvaseiðs stemming við Residenz Fountain, Julia söng og gekk framhjá honum. Chapter Horse Pond og kastalinn í baksýn. Strákamynd við innganginn í Mirabell garðinn - munið Söngvaseið! Og svo stelpumynd á sama stað. Sullað í vatninu, það var grunnt þarna og ekki ískalt, bara svalandi. Flottir frændur! Algjörlega nauðsynlegt að stoppa við þennan bæ í Austurríki! Og þá ekki síður í þessum bæ í Bæjaralandi. En við bæinn Tittling voru þessar fínu risaeðlur. Við borðuðum nestið okkar þarna og sáum meira að segja eina alvöru eðlu.