Áhugamál

Ég á mér áhugamál. Ég er viss um að margir deila þessu áhugamáli með mér og stunda það á hverjum degi. Ég kýs að kalla áhugamálið hangs.

Mér finnst gaman…
…að hangsa við eldhúsborðið og lesa blöðin
…að hangsa í strætó og hlusta á tónlist
…að hangsa í sófanum og horfa á sjónvarpið
…að hangsa í græna herberginu og tala í símann
…að hangsa hvarsemer í tölvunni
…að hangsa í rúminu með bók
…að hangsa með vinum og spjalla